Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Page 56

Eimreiðin - 01.01.1957, Page 56
40 EIMREIÐIN ir mér snjóstífluna og brjótast í sinn gamla farveg. Það var eins og vatninu væri ekki sama hvar það rynni. Þegar ég leit næst upp frá verki, voru gestirnir allir á burt. Sumir þeirra stóðu í handaböndum við fóstra minn neðan við garð, en aðrir fóru í kring um féð. Ég hafði fengið nóg af áveitum í bráðina. Ég hljóp niður túnið til gestanna. Kveðj- unum var lokið, og fóstri minn sneri við heim til bæjar. Einhver óvenjulegur þreytusvipur lá yfir látbragði hans og hreyfingum. Hann gekk álútur með hendur á baki. Hann virt- ist þurfa til þess átök og heilabrot að taka annan fótinn fram fyrir hinn upp túnhallið, og þó var brattinn ekki mikill. Ég hljóp beint til fóstra míns, tók í treyjuermina og seild- ist eftir hendi hans, en hendurnar lágu ekki lausar. Það hvíldi hörkubundin tregða yfir viðmótinu. Hann hálfhratt mér frá sér með handleggnum, án þess að losa takið að baki sér. — Láttu mig vera, strákur. Röddin var köld og sár, viðmót- ið stirðnað og hrjúft. Mér brá. Þetta kom mér á óvart. Fóstri minn var stund- um fálátur og þurr á manninn, en mér var hann aldrei ónota- legur. Hvað hafði honum mislíkað við mig? Hafði honum máski þótt það, að ég var að bjástra við lækjarskömmina? Ég kunni ekkert ráð við þessum önugleik fóstra míns og greip þá til þess, sem efst var í huga mínum í sambandi við gestkomuna og ég áleit að væri honum að skapi. — Sögðu þeir nokkrar fréttir neðan úr dalnum? — Nei. — Fréttirðu ekki eitthvað af honum Sigurði? Fóstri minn hikaði við í spori. — Af Sigurði? Ha, frétti ég af honum — — honum Sig- urði? — Já, honum Sigurði í Bár? Fóstri minn virtist ætla að halda áfram án þess að virða mig svars, en hann staðnæmdist og leit á mig. — Jú, ég frétti af honum Sigurði, — hann Sigurður er dá- inn. Það á að jarða hann á laugardaginn kemur. Fóstri minn rétti úr sér, og hendurnar féllu niður með síð- unum. Hann leit heim að bænum og rétti aðra höndina í átt-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.