Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Side 74

Eimreiðin - 01.01.1957, Side 74
58 EIMREIÐIN riðu buitu í smáhópum. Mér fannst lífið tæpast veruleiki í allri þessari dýrð og tilbreytingu. Ég liafði hvað eftir annað sofnað, þar sem ég sat. Að rúminu mínu komst ég auðvitað ekki, allt var fullt af fólki. Ég hafði fengið ljúffenga kirsi- berjasaftblöndu að drekka, en var samt óglatt. Loksins komst ég upp í í'úmið mitt og valt þar út af sofandi í öllum spari- fötunum. V. Ein af stærstu skilaréttum á landi hér var um þessar mundir Stafnsrétt í Svartárdal. Síðar hafa verið byggðar aukaréttir, er draga mikið frá þessari stóru rétt. Stafnsrétt stendur á sléttri grund fremst í Svartárdal í Húnavatnssýslu, örskannnt frá ármótunum, þar sem Svartá og Fossá koma saman. Einn bær er fyrir framan réttina, í Fossárdal, og heitir Fossar. Stafnsrétt er undir hárri, mjög brattri brekku, austan megin Svartár. Að vestan tekur brekka við upp frá ánni. Dalurinn er þar þröngur, aðeins djúp skora á milli klettóttra hálsa. — Þó eru grundir sléttar út frá réttinni. Réttirnar voru þá einhver helzta skemmtun fólks. Þar hitt- ust bændur og búalið einu sinni á ári, víðs vegar að, úr tveim sýslum. Fjöldi kvenna kom og þangað, og krakkarnii fengu að fara með, ef tíð var góð. — í Stafnsrétt voru hundruð manna, þúsundir hesta og tugþúsundir sauðfjár, auk hund- anna, sem voru ótrúlega margir. Ég hlakkaði mikið til þess að fara í Stafnsrétt, sérstaklega í fyrsta sinn. Um morguninn var norðangjóstur með hryðjum og kalsaveðri, en batnaði með deginum. Foreldrar mínir fóru bæði og fleira fólk að heiman. Vinnumenn voru þrír í göng- um, tveir í aðalgöngum, en einn í svonefndum heimfjalla- göngum. — Á leiðinni upp að Kiðaskarði var fólk af öðrum bæjum að smábætast í liópinn. Það kom neðan Bug og utan Efribyggð. — Við Reykjasel hittum við Eyjólf Einarsson á Mælifellsá og Konráð föðurbróður minn á Ytra-Vatni. Voru menn nú kátir, er upp í skarðið var riðið í glaða sólskini. Nú var ég kominn í ókunnan heim, svona langt liafði ég aldrei komið í vesturátt. Og bráðum átti ég að komast í aðra sýslu í fyi'sta sinn á ævi minni. Það var eins og ævintýri, og

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.