Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1957, Síða 85

Eimreiðin - 01.01.1957, Síða 85
ERLENDAR BÓKAFREGNIR 69 skáldskapnum og hinum sanna, skapandi anda allt líf sitt og orku, °S það þarf því engan að undra, þótt hann hafi haft djúptæk list- r*n áhrif á þá, sem næstir honum stóðu. Fjögur af sex börnum Thom- asar Manns liafa þannig lagt mikla stund á skáldskap og ritstörf. Erika, elzta dóttir Manns, og Klaus, elzti sonur hans, hafa bæði komizt langt a þeirri braut, ritað allmörg at- hyglisverð leikrit, skáldsögur og ívisögur. Klaus er látinn fyrir nokkrum árum. Golo, sem er yngri, nýtur mikils álits sem sagnfræðing- Ur og rithöfundur. Hið fjórða af börnum Manns, sem lagt hefur stund á ritstörf, er óóttir hans, Monika, en fyrir nokkru komu út endurminningar eftir hana, er hún nefnir Vergang- enes und Gegenwartiges, sem kannski mætti nefna Fyrr og nú. Honika hefur um ævina aðallega *agt stund á tónlist, en virðist ekki hafa getað staðið gegn innri hvöt smni til þess að tjá sig í formi hins fitaða orðs. Monika lýsir á mjög ljósan og skernmtilegan hátt lífinu á hinu ijölmenna heimili Mann-fjölskyld- Unnar í Munchen, tónleikum heima hjá afa hennar, þar sem hann og vmur hans léku óperur Wagners a tvö píanó, sumarleyfum með iöður hennar við strönd Eystra- saltsins, þar sem hann ritaði fyrstu skáldsögu sína um Jósef. Hún lýsir emnig veizlunni, sem Thomas -^fann átti síðar eftir að gera ódauð- h'ga í skáldsögu sinni Unordnung nnd friihes Leid. Monika kemst auðvitað ekki hjá því að segja úokkuð frá sinni eigin lífsreynslu, ttteðal annars þeim harmleik, sem liún varð þátttakandi í, er skip það, sem hún og maður hennar ferðuðust með yfir Atlantshafið, var skotið niður með tundurskeyti, með þeim afleiðingum, að maður hennar drukknaði og hún varð sjálf að hanga á fleka nær dauða en lífi í meir en 20 klukkustundir. En samkyæmt þeim umsögnum, sem ég hef séð um bókina, virðist mér, að meginhluti hennar sé helg- aður föður Moniku og frásögn af ýmsum merkilegum þáttum í einkalífi og rithöfundarferli hins fræga þýzka skáldsagnameistara. BELGÍA. Þeir, sem kunna að hafa verið þeirrar skoðunar, að Belgíumenti (einkum Flæmingjar) séu fremur sljóir og daufgerðir, en á hinn bóg- inn siðavandir, munu eflaust kom- ast að raun um annað, er þeir hafa lesið eina af nýjustu bókum skáld- konunnar Francoise Mallet-Joris, sem í enskri þýðingu hefur hlotið nafnið Rauða herbergið (The Red Room), ef dæma má af umsögnum og gagnrýni um bók hennar. Sam- kvæmt þeim er það augljóst, að enda þótt blóðið í æðum Flæm- ingjanna sé kannski ofurlítið þykk- ara og renni hægar en i hinum rómönsku frændum þeirra og ná- grönnum, þá eru þeir engum sér- stökum hömlum og hindrunum bundnir, þegar út í ástir og önn- ur samskipti kynjanna er komið. Francoise Mallet-Joris er aðeins 25 ára gömul, en er samt talin vera einna fremst í flokki yngri höf- unda belgískra. Hún tilheyrir þeim hópi ungra rithöfunda — stundum nefndir „heiðna kynkvíslin" —, sem reka upp stór augu og undrunar-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.