Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1957, Blaðsíða 24

Eimreiðin - 01.10.1957, Blaðsíða 24
256 EIMREIÐIN Hvort gamli maðurinn hefði tök á að greiða fargjaldið fyrir soninn heim? Sendiráðið hafði séð um ferðina og kostað hana. Yfirvöldin þar í landi hefðu farið þess á leit við sendiráðið, að maðurinn væri fluttur heim, því hann væri haldinn bráð- smitandi sjúkdómi. Leiðindamál, en þetta kemur þó fyrir. Vonandi, að honum batni. Gamli maðurinn borgaði tíunda hlutann af fargjaldinu, því sem eftir væri mundi hann ljúka á næstu mánuðum. Hann vildi ekki í nefið að skilnaði. Mað- urinn frá utanríkisráðuneytinu kvaddi vingjarnlega, og gamli maðurinn haltraði inn til gömlu konunnar. Hún sat og hamaðist við að prjóna. Heldurðu að honum þætti ekki gaman að fá peysu fyrir veturinn, spurði hún, þegar gamli maðurinn kom inn. Það verður gott fyrir hann að fá peysu, sagði gamli mað- urinn, það verður kaldur vetur. Heldurðu að hann fái nógu góðan mat á hælinu? spurði gamla konan. Skyldu {:>eir nokkru sinni hafa kjötsúpu? Þeir hafa ábyggilega kjötsúpu oft, sagði gamli maðurinn og lagði sig upp á dívan, setti upp gleraugun og fór að lesa dagblöðin. Það er vel úti látið hjá þeim og góður matur. Kettlingurinn var liættur að leika sér, en kúrði undir ofn- inum og mókti. Ósköp var fallegt af honum að koma heim eftir öll þessi ár til að vera hjá okkur þangað til við deyjum. Gamli maðurinn svaraði: Já, þangað til við deyjum. Svo varð löng þögn í stofunni nema klukkan tifaði á veggn- um. Gamla konan hamaðist við að prjóna peysuna. Aldrei dettur þér í hug að lesa fyrir mig eitthvað úr blöð- unum, sagði hún. Það er ekkert skemmtilegt í blöðunum, sagði hann, ég leS bara um fiskinn og skipin. Var ekki síldarleysi fyrir norðan? spurði konan. Hún er heldur að glæðast, sagði gamli maðurinn, og rödd- in var óskýr af því hann velti tóbakstölu upp í sér. Margn bátanna hafa fengið stór köst. Það er gott, sagði gamla konan, þá verður eitthvað að gera fyrir blessað fólkið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.