Eimreiðin - 01.10.1957, Blaðsíða 33
DR. HELGI PJETURSS
265
muni vera satt að Kristur hefði, þegar sérstaklega stóð á, get-
að lífgað þá, sem nýdánir voru, sakir afburða af lífsmagni og
ástúð, og að þetta muni takast að skýra eins og fleira furðu-
legt, sem hefur þótt undrun sæta, þegar vísindin verða kom-
in nokkru lengra áleiðis en nú er.“
Skýringarinnar þurfti ekki lengi að bíða, því það féll í hlut
dr. Helga að leiða í ljós eðli lífsambandsins, sálufélagsins og
sarnvitundarinnar, og þetta fékkst með ráðningum á eðli
drauma. — Árangur rannsókna hans var þar skjótari og meiri
en hann í fyrstu bjóst við. En þetta var mjög erfitt viðfangs-
efni, og hafa margir bæði lærðir og leikir glímt við það. Að
vísu hafa þeir reynt að ráða þessa erfiðu gátu án arangurs,
sem sést bezt á því, hvað niðurstöðurnar hafa verið tómfræði-
legar og ósamhljóða.
Dr. Helgi byrjar á að athuga muninn á hugsun og draumi.
Hann fann þann mikla mun á hugsun og skynjun í vöku, þ.
e- hugsa um einhvern hlut og sjá hann. Varð þessi byrjun-
arathugun til þess að komast á rétta leið. Næst fann hann, að
enginn eðlismunur er á því að sjá og skynja eitthvað í vöku
°§ sjá það í svefni — dreyma það. „Draumurinn er líf,
Segir hann. Þetta geta allir athugað. — Næsta skref hans í
þessum rannsóknum var að finna, að þótt draumurinn sé lif
°g skynjun eins og í vöku, þá var það ekki hans eigin skynj-
heldur einhvers annars, sem vakir. Þetta atriði liefur
þeim, sem rannsakað hafa eðli drauma, yfirsézt. Útlit manna
* draumi er allt annað en það er í raun og veru. Sjái mað-
þr sjálfan sig í spegli í draumi, er útlitið allt annað. Svefn-
inn er því sambandsástand. Sá, sem dreymir, sér og skynjar
^eð annarra skilningarvútum. Sambandsástand þetta er mjög
misjafnlega fullkomið, sem veldur oft missýningum í draumi,
yegna áhrifa úr vökuvitund dreymandans. Draumgjafa nefn-
ir hann þann, sem þannig fæst samband við. Samvitund þessi
eða sálufélag er gegnumgangandi náttúrulögmál milli allra
Hfandi vera, einnig í vöku, meira eða minna, en þar er það
ekki eins greinilegt. í sambandi við þessar rannsóknir veitti dr.
Helgi
því eftirtekt, að áhrif frá öðrum í vöku ráða, hvernig
draumarnir verða, skýrir eða óskýrir, góðir eða illir. Menn-
lna> seni þannig ráða því, hvernig draumarnir verða, nefnir