Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1957, Blaðsíða 46

Eimreiðin - 01.10.1957, Blaðsíða 46
278 EIMREIÐIN lítillæti að þekkjast boðið, skal ég gefa þér nóg brennivín. Annars færðu ekki neitt hjá mér.“ Mangi mehe gengur inn í svefnherbergið og tyllir sér á einn kassann. „Hvar eru stelpugæsirnar?“ spyr Gunnar Br. konu sína. „Úti,“ svarar konan og heldur áfram að prjóna. „Gefðu okkur Manga heitt vatn í könnu, og lánaðu okkur bolla eða eitthvað til að drekka úr.“ Konan svarar ekki neinu, en stendur á fætur. Gunnar geng- ur inn í svefnherbergið og sezt á kassa gegnt Manga. „Það er nú þetta með stelpugæsirnar," segir Gunnar við Manga. „Ég er sannarlega feginn því, að ég kemst með þær til Reykjavíkur. Hérna er þeim nauðugur einn kostur að vera með hásetum og óbreyttum hermönnum, því dætur fólksins Iiérna, sem telur sig vera af betra taginu, hafa öll trompin á hendinni til þess að krækja í þá borðalögðu. Það er ekki lítill munur að geta boðið þessum délum heim í uppmubleraðar stofur hjá fínum foreldrum og trakterað þá á brennivíni. Þetta er allt öðru vísi í henni Reykjavík, lagsmaður. Þar gildir snoppan.“ Mangi mehe svarar engu. Enn hefur Gunnar ekki gert sig líklegan til að bjóða honum brennivín, og þess utan er Mangi annars hugar. Öðru vísi en hann á að sér að vera. Hann er sátt- ur við allt og alla og furðar sig á því, en samt líður honum vel. Hann finnur ekki hjá sér minnstu löngun til að spýta skro- tóbakssafanum á hvítþvegið gólfið, ekki minnstu löngun til að bölva. Honum finnst hálft í hvoru minnkun að þessu, og hann langar í brennivín. Kona Gunnars kemur inn til þeirra með könnu, fyllta heitu vatni, tvo stóra, kollótta bolla, teskeiðar, sykur á undirskál- Hún lætur könnuna, sykurskálina og annan bollann á kassann hjá Manga, fær manni sínum hinn bollann. Segir ekki stakt orð, biður þá ekki einu sinni að gera svo vel, hverfur afttu' frarn í eldhúsið, sezt á stólinn við eldavélina og tekur að prjóna. Gunnar Br. Sigmundsson lítur á könnuna, bollana og sykm'- skálina og setur upp vanþóknunarsvip. Hristir höfuðið og dæsir þungan. Þessi kona, þessi kona. Fyrr má nú vera, maður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.