Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 14

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 14
2 EIMREIÐIN síður við að sjá þar en hans. Að því nafni leitaði ég en fann ekki. Þetta nafn var Sæmundur Sigfússon. Sæmundur Sigfússon, er kallaður liefur verið í sögu og sögnum hinn fróði, var fyrsti Norðurlandabúi, er stundaði nám í Sor- bonneskóla. Námsdvöl hans þar hefur að sjálfsögðu þótt tíðindum sæta í samtíð hans, og hún orkaði svo mjög á ímyndunarafl þjóðar- innar, að hún varð yrkisefni hennar í margar aldir eftir dauða hans, og hann varð ein nafnkunnasta persóna íslenzkra þjóðsagna. Vart hefur sá íslendingur verið til, allt frá dögum Sæmundar, er ekki hefur heyrt hans getið. Sennilega hafa farið að myndazt þjóð- sögur um Sæmund þegar í samtíð hans, og þær héldu áfram að skapast, breytast og varðveitast allt fram á síðustu aldir. Það hefur ekki aðeins verið skólavera Sæmundar í Frakklandi, sem hefur orðið fræg í samtíð hans og hugarsmíðum þjóðarinnar gegnum þær aldir, sem liðnar eru frá dauða hans, heldur hinir miklu vitsmunir hans, samfara lærdómi, og ráðsnilli, er ollu því, að samtíðamenn hans leituðu til hans, er þeim þótti mikils við þurfa. Eftir dauða hans fara svo að myndast sagnir um, að hann hefði skyggnzt dýpra og vitað meir um dulmögn tilverunnar, en allir aðrir samtíðarmenn hans liér á landi. Og alþýðan íslenzkaði nafn Sorbonneskóla og nefndi hann Svartaskóla. Og svo kom, að hún taldi að fræði þau, er Sæmundur hafði numið þar, hefðu verið „svörtukúnstir", og skólastjórinn, höfundur svörtukúnsta, fjandinn sjálfur. En gáfur Sæmundar voru svo miklar, að hann drakk í sig öll þau vísindi, er skólastjórinn hafði á valdi sínu, og varð Kölska og árum hans snjallari í þekkingu og bragðvísi, og gat kvatt þá sér til aðstoðar, ef honum þótti svo við þurfa. Hann gat haft þá sem mikilvirkar vélar, er hann stjórnaði, án þess þó að nokkrir menn biðu tjón við það, andlegt eða líkamlegt. í sagnaskáldskap alþýðunnar er talið, að flestir menn aðrir, er höfðu hlotið slíkan Iærdóm í dulvísindum sem Sæmundur, hefðu orðið að veðsetja sál sína fjandanum að launum. En vitsmunir Sæmundar voru svo miklir, að hann gat jafnan snúið á þann gamla í samningum og varðveitt sál sína frá því að lenda í klóm hans. Hún er skáldleg og skemmtileg, og felur í sér mikið mannvit, þjóðsagan um það, hvernig Sæmundur slapp úr Svartaskóla. Og þótt hún sé alkunn, þá vil ég samt rifja hana upp til skýringar því efni, sem ég tala hér um:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.