Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 16

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 16
4 EIMREIÐIN lendra fræðimanna. Hún hefur borið nafn Sæmundar út um víða veröld, þar sem íslenzk og norræn fræði eru stunduð. Á 17. öld var skinnhandrit frá 13. öld með flestum Eddukvæðunum í eigu Brynjólfs biskups Sveinssonar í Skálholti. Brynjólfur kallaði bók þessa Sæmundar-Eddu, því að hann hugði, að Sæmundur hefði annað hvort ort kvæðin eða safnað þeim saman. Handrit þetta sendi Brynjólfur biskup konungi að gjöf, og er handritið kallað Konungsbók og enn geymt í hinu Konunglega bókasafni í Kaup- mannahöfn. Nútíma fræðimenn telja að Sæmundur hafi alls ekki ort kvæði þessi, því að þau séu eldri en frá hans tímurn, og ort af fleiri en einum höfundi og í fleiri en einu landi. Þeir telja enn fremur að engin rök liggi til þess, að Sæmundur hafi safnað þeim saman. Enginn hinna fornu rithöfunda vorra hefur skrifað sögu Sæ- mundar. Hann lifði á því tímabili, sem kallað er í sögu vorri Frið- aröld. Heimildir eru ekki margar um þann tíma, og er því frem- ur lítið vitað um ævi Sæmundar. En í þeim íslenzkum sögum, er gerast á dögum Sæmundar, er hans getið. Vil ég nú rekja það helzta, sem heimildir segja um hann. Víða er hans getið í ættartölum, enda er sýnt að mönnum hefur þótt sómi að því að rekja ætt sína til Sæmundar fróða. Faðir hans var Sigfús prestur í Odda, er kominn var í beinan karllegg frá Hrafni hinum heimska landnámsmanni, en hans ætt er rakin til fornkonunga Dana. Móðir Sæmundar var Þórey Eyjólfsdóttir hins halta á Möðruvöllum í Eyjafirði, Guðmundssonar hins ríka. Kona Eyjólfs halta, amma Sæmundar, var Ingveldur dóttir Síðu-Halls. En eins og kunnugt er, var Síðu-Hallur einn bezti maður, sem frá er sagt í íslendingasögum. Forníslenzkir annálar telja, að Sæmundur sé fæddur árið 1056, eða sama ár og ísleifur Gissurarson var vígður Skálholtsbiskup. Kemur nú löng eyða, er ekkert er vitað um Sæmund. Að líkindum hefur faðir hans verið vel efnaður. Sæmundur mun hafa verið bráðþroska og kjarkmikill, og þótt sýnt þegar í æsku hans, að hann myndi verða mikill gáfumaður. Elann hefur farið ungur utan til náms. Forníslenzkir annálar — Konungsannáll — segir, að hann Sæmundur á selnum, höggmynd Ásmundar Sveinssonar; ljósmyndin tekin á sýn- ingu, „Salon d’Automne" i Paris 1928. >
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.