Eimreiðin - 01.01.1961, Síða 16
4
EIMREIÐIN
lendra fræðimanna. Hún hefur borið nafn Sæmundar út um víða
veröld, þar sem íslenzk og norræn fræði eru stunduð. Á 17. öld var
skinnhandrit frá 13. öld með flestum Eddukvæðunum í eigu
Brynjólfs biskups Sveinssonar í Skálholti. Brynjólfur kallaði bók
þessa Sæmundar-Eddu, því að hann hugði, að Sæmundur hefði
annað hvort ort kvæðin eða safnað þeim saman. Handrit þetta
sendi Brynjólfur biskup konungi að gjöf, og er handritið kallað
Konungsbók og enn geymt í hinu Konunglega bókasafni í Kaup-
mannahöfn. Nútíma fræðimenn telja að Sæmundur hafi alls ekki
ort kvæði þessi, því að þau séu eldri en frá hans tímurn, og ort af
fleiri en einum höfundi og í fleiri en einu landi. Þeir telja enn
fremur að engin rök liggi til þess, að Sæmundur hafi safnað þeim
saman.
Enginn hinna fornu rithöfunda vorra hefur skrifað sögu Sæ-
mundar. Hann lifði á því tímabili, sem kallað er í sögu vorri Frið-
aröld. Heimildir eru ekki margar um þann tíma, og er því frem-
ur lítið vitað um ævi Sæmundar. En í þeim íslenzkum sögum, er
gerast á dögum Sæmundar, er hans getið. Vil ég nú rekja það helzta,
sem heimildir segja um hann.
Víða er hans getið í ættartölum, enda er sýnt að mönnum hefur
þótt sómi að því að rekja ætt sína til Sæmundar fróða. Faðir hans
var Sigfús prestur í Odda, er kominn var í beinan karllegg frá
Hrafni hinum heimska landnámsmanni, en hans ætt er rakin til
fornkonunga Dana. Móðir Sæmundar var Þórey Eyjólfsdóttir hins
halta á Möðruvöllum í Eyjafirði, Guðmundssonar hins ríka. Kona
Eyjólfs halta, amma Sæmundar, var Ingveldur dóttir Síðu-Halls.
En eins og kunnugt er, var Síðu-Hallur einn bezti maður, sem frá
er sagt í íslendingasögum.
Forníslenzkir annálar telja, að Sæmundur sé fæddur árið 1056,
eða sama ár og ísleifur Gissurarson var vígður Skálholtsbiskup.
Kemur nú löng eyða, er ekkert er vitað um Sæmund. Að líkindum
hefur faðir hans verið vel efnaður. Sæmundur mun hafa verið
bráðþroska og kjarkmikill, og þótt sýnt þegar í æsku hans, að hann
myndi verða mikill gáfumaður. Elann hefur farið ungur utan til
náms. Forníslenzkir annálar — Konungsannáll — segir, að hann
Sæmundur á selnum, höggmynd Ásmundar Sveinssonar; ljósmyndin tekin á sýn-
ingu, „Salon d’Automne" i Paris 1928. >