Eimreiðin - 01.01.1961, Síða 20
8
EIMREIÐIN
árið 1121, sem sagt er frá í sögu þeirra, er Þorgils reið til þings með
960 menn og Hafliði með 1680 rnenn, og Hafliði hafði látið rífa
niður alla búð Þorgilsar, að þá hafi Sæmundur hinn fróði gengið
til með nokkra menn og látið gera upp búð Þorgils.
Fáum árum síðar er hans getið í Einars þætti Sokkasonar, er
Arnaldur Grænlandsbiskup hafði verið vígður af erkibiskupnum
í Lundi og sigldi frá Noregi, en varð að lenda um haustið undir
Eyjaf jöllum. Segir í þættinum, að þá hafi Sæmundur fróði riðið til
skips og boðið biskupi að vera Iijá sér um veturinn og hafi biskup
jiegið boð hans.
Ari byrjar íslendingabók sína með Joessum setningum:
„íslendinga bóc g0rjra ec fyrst byscopom órom, Þorláki oc Katli,
oc sýndac bæjri þeim oc Sæmundi presti. En mejr þuí at þeim
lícaþi svá at liava ejra J:>ar viþr auka, Jrá scrivaþa ec Jaessa of et sama
lar, fyr útan áttar tölu oc conunga ævi, og íócc þuí, es mér varþ
síþan cunnara oc nú es g0rr sagt á þessi an á þeiri.“
Biskupar Jreir, sem Ari talar hér um, eru Jreir Þorlákur biskup
Runólfsson í Skálholti (1118—33) og Ketill biskup Þorsteinsson
á Hólum (1122—45). Hann hefur Jdví skrifað íslendingabók á
þeim tíma, sem jDeir eru samtímis biskupar 1122—33. Þá hefur
Sæmundur verið kominn á efri ár.
Ég er áður búinn að geta um það, sem Ari segir um komu Sæ-
mundar frá Frakklandi og þátttöku hans í tíundarlöggjöfinni. Og
á fjórða stað minnist Ari á Sæmund í íslendingabók, er hann hef-
ur talað um kristnitökuna á íslandi: „en Ólafr Trygguason fell
et sama sumar at sögo Sæmundar prestz“. Af því, hve Ari minnist
Sæmundar oft og vitnar í ummæli hans í hinu litla íslandssögu
ágripi sínu, má sjá, hve mjög hann hefur treyst þekkingu hans og
vitsmunum.
Kona Sæmundar var Guðrún Kolbeinsdóttir lögsögumanns Flosa-
sonar. Líklega hefur sá Flosi verið Brennu-Flosi, sem kunnastur
er af Njálssögu.
Líklegt er, að Sæmundur hafi haft skóla í Odda. Víst er, að
Eyjólfur sonur hans hélt skóla þar, og hjá honum lærði Þorlákur
Þórhallsson, sem síðar varð biskup og kallaður hefur verið hinn
helgi. í sögu Þorláks biskups er borið mikið lof á Eyjólf. Segir
höfundur Þorlákssögu hinnar elztu meðal annars um Eyjólf, að
hann „hafði höfðingsskap mikinn ok lærdóm góðan, gæzku ok vits-
muni gnægri en flestir aðrir, ok Iteyrðum vér hinn sæla Þorlák þat