Eimreiðin - 01.01.1961, Blaðsíða 47
EIMREIÐIN
35
Hnkon „háleggur“ Magnússon
(Úr B. Þorst.: „ísl. Skattlandið")
jarls yíir íslandi þetta ár. í fram-
haldi af frásögninni um skipun
jarlsins er talað um „útboð“ Eiríks
konungs af Islandi". En þannig var
málum liáttað, að Eiríkur konung-
ur Magnússon eða ráðgjafar lians
höfðu í hyggju að koma á her-
skyldu á íslandi og kveðja menn
héðan til leiðangurs gegn Svíum,
einmitt þetta ár 1286. Fyrirætlun
jressi mætti hinsvegar mikilli mót-
stöðu hér á landi. Þegar svo sjálfur
æðsti umboðsmaður konungs hér-
lendis, Hrafn Oddsson, snerist önd-
verður gegn útboðinu, mun kon-
ungi hafa litist svo, að grípa þyrfti
til róttækari aðgerða. Fyrir því
skipar hann einn helzta trúnaðar-
mann sinn, „herra“r) Auðunn sem
jarl yfir landið, til þess auðvitað,
‘'ð konia málinu fram og sveigja íslendinga til hlýðni í bráð og lengd
tnsvegar virðist konungi hafa snúizt hugur í þessurn málurn, enda var
ann óharðnaður unglingur og lítt til stórræða. Ef til vill hafa það líka
'erið ráð jarls, að ekki var farið í hart við íslendinga út af herskyld-
nnni, enda höfðu þeir konungur öðrum hnöppum að hneppa áður en
aþgt um liði, sbr. síðar.2) Vera má að herra Auðunn hafi ekki verið jarl
)úr íslandi nema stutt árabil, en sjálfsagt má þó telja, að íslandsmál
a ' í konungsgarði gengið í gegnum hans hendur öll þau ár, er Eiríks
°nungs naut við. „Þá var Auðunn hestakorn hæstr í ráði með kon-
Unginum“, segir í Árna byskups sögu. Eftir daga Auðuns hestakorns er
nrei skipaður jarl yfir landið, enda voru jarlsdæmi að fullu afnumin
1 ’íkjum Noregskonungs árið' 1308.3) Er hann síðasti íslandsjarlinn, og
reyndar að segja má hinn eini, þar sem draga má í efa, að Gizur hafi
launverulega nokkru sinni verið jarl yfir öllu íslandi.
Ún hvort sem Auðunn hestakorn hefur verið jarl yfir íslandi lengri
a skemmri tíma, og hvernig sem völdum lians var annars háttað, þá
hitt víst, að liann hefur rnjög komið við sögu íslendinga þessi ár.
ann var stallari konungs (frá 1276) og þannig æðsti embættismaður
Ú »Herra“ var virðingartitill þeirra, sem slegnir höfðu verið til riddara.
2) Athyglisvert er þó, að umboðsvaldið var ekki tekið af Hrafni Oddssyni
ratt fyrir andstöðu hans við fyrirætlanir konungs.
Nema í Orkneyjum.