Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 60

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 60
48 EIMREIÐIN þetta lægi ekki í'yrir við „réttarhöldin",1) enda hefði konungsmönnum þá e. t. v. orðið nokkuð erfiðara um vik, að ryðja stúlkunni úr vegi. í Lögmannsannál (?) segir á þessa leið: 1319 „Dáinn Hákon konungur1 (háleggur) ... Dauði síra Hafliða Steinsson- ar af Breiðabólsstað. ... Hann var mikils háttar maðr, ... Hann fór utan og var hirðprestr herra Eiríks konungs. Bar þat þá til, er Margét, dóttir Eiríks konungs, var búin í Björgyn ok hana skyldi flytja til Skotlands, sem HON VOTTAÐI SJÁLF SÍÐAN, ÁÐR EN HON VAR BRENND í NORÐNESI — „at þá er ek var þetta sama port ofan flutt —__var íslenzkr prestr, er Hafliði hét, með feðr mínum, Eiríki konungi, og þá er klerka þraut sönginn, hóf hann síra Hafliði upp veni creator spiritus, ok þann ymna sungu þeir út, svá sem ek var á skip borin.“ Þetta it sama sannaði síra Hafliði, þá er hon- um var sagt, at SÚ SAMA MARGRÉT hafði brennd verið í Norðnesi" o. s. frv. Það fer varla milli mála, að liér er um mikilvæga sönnun að ræða fyrir sakleysi stúlkunnar. Henni hefur verið minnisstæð skilnaðarstundin við foreldrana fyrir 10 árum, og í fangelsishliðinu á leið til aftökunnar rifjast upp fyrir henni sálmasöngur hins íslenzka prests, sem hún vitan- lega hefur þekkt og munað, þar sem liann var kapelluprestur liennar og kennari. Henni er synjað um að fslendingurinn yrði kvaddur vættis um þetta, sem eitt með öðru sýnir hverskonar „réttarfar" var hér á ferð- um. Síðar, þegar þetta berst lil eyrna lians hingað út til íslands, stað- festir liann frásögn stúlkunnar í einu og öllu. Það verður ekki fram hjá því gengið, að hér er mikil sönnun á ferðum, raunverulega áþreif- anlegasta sönnunin fyrir sakleysi stúlkunnar, sem tiltæk er sem nú er komið. Sérstaklega ber að veita því athygli, að frásögn Lögmannsann- áls ber það með sér, að sr. Hafliði og annálsritarinn eru báðir sann- færðir urn, að stúlkan hali sagt satt, sbr. hinar (af mér) feitletruðu setn- ingar hér að framan, „hon vottaði sjáll', o. s. frv. .. . sú sama Margrét, o. s. frv.“ Þeir eru ekki í neinum vafa, þessir merku menn, og samtíma- menn þessara atburða, að dómsmorð hafi verið framið á stúlkunni. Vætti þeirra, sem felur þannig í sér tvöfalda sýknusönnun, lilýtur um alla tíma að vera ærið þungt á metum sögu og réttlætis. Þá er í þriðja lagi þess að geta, sem einnig hlýtur að verða þungt á metunum, að stúlkan stóð fast á því fram í dauðan og hvikaði aldrei frá því, að liún væri Margrét dóttir Eiríks konungs. Lítill vafi er á því, að hún hefði getað bjargað lífi sínu með því að falla frá þessari staðhæf- ingu, enda má ætla, að lienni hafi einmitt verið valinn liinn ógnvekj- andi dauðdagi til þess að þvinga fram slíka „játningu". En það bar sem sagt ekki árangur. 1) Andreas Munch segir, að stúlkan hafi beiðst Jiess, að leitað yrði vitnis- burðar sr. Hafliða, sem er og mjög trúlegt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.