Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 62

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 62
50 EIMREIÐIN IX. Ég heí' nú rakið sögu St. Margrétar og þau rök hin helztu, sem hníga að því, að hún hafi raunverulega verið dóttir Eiríks konungs, og hún og þeir, sent að henni stóðu, liafi þannig verið í góðri trú.1) Hinsvegar þarf ekki að vera þar með sagt, að þeir liafi gert það af réttlætiskennd, heldur liafi valdastreitusjónarmið þar rnestu urn ráðið. Menn vita að vísu ekki, hverjir liafi staðið að heimferð Margrétar, en vafalaust virð- ist, að það hafi hlotið að vera einhverjir kirkjunnar menn eða þá liöfð- ingjar, sem nú óttuðust breytt valdahlutföll vegna konungaskiptanna og höfðu reyndar sumir strax fengið nokkurn smjörþef af. Vafalaust hefur Auðunn liestakorn verið í þeirra tölu, ef ekki fyrirliðinn, þó að beinar heimildir liggi ekki fyrir.2) Þótt hann hafi með nokkrum hætti verið undir eftirliti og gæzlu á þessum tíma, þarf það engan veginn að útiloka hlutdeild hans í ráðagerðum þessum. Eftirtektarvert er, að liinn eiginlegi málarekstur gegn Auðunn hestakorn byrjar sem sagt strax á eítir eða í framhaldi af málssókn og aftöku Margrétar enda segir Lár- entsíusarsaga frá þessum atburðum í samhengi og m. a. s. í sömu máls- grein, sem sýnist taka af tvímæli um, að höfundurinn a. m. k. hefur talið beint orsakasamband vera rnilli þessara atburða. Þessi mun og hafa verið skoðun þeirra frændanna, sagnfræðingsins P. A. Munch og skáldsins Andreas Munch. Hins vegar má telja víst og áreiðanlegt, að Auðunn liefur ekki fylgt Margréti að málurn hennar allt þar til yfir lauk, hann virðist þvert á móti liafa brugðizt henni þegar á hólminn var komið, og þarf ekki um það í grafgötur að leita, að hann liefur með því viljað reyna að bjarga sínu eigin skinni, er í óefni var komið. Að þessu hafi í raun og sannleika verið þannig varið má ráða af því, hve eindregið sagnir og þjóðkvæði frá þeirn tíma leggjast á þá sveif, að Auðunn liestakorn liafi einmitt gengið fram í því að fá stúlkunni tortímt. Ef liann hefði staðið með stúlkunni þar til yfir lauk, hefði al- þýða manna áreiðanlega gert hann að píslarvætti við hlið hennar, í stað þess að hann er beinlínis talinn eiga sök á afdrifum hennar og ógæfu, enda valin hin verstu eftirmæli. Urn málareksturinn gegn Auðun hestakorn vitum við í rauninni ekk- ert, nema að hann var dærndur af (12 manna) hirðrétti í Björgyn og þvínæst af lífi tekinn árið 1302, á hinum gamla afstökustað Norðnesi. Um sakargiftirnar vitum við, eins og áður er sagt, heldur ekki til neinn- 1) í Salmonsens Leksikon segir, að Margrét liafi orðið „sönnuð að svikum", en þetta er ekki annað en upptugga eftir hinum norsku fræðimönnum, sem aldrei hafa viljað viðurkenna hin hroðalegu atvik, sem liér hafa verið gerð að umtalsefni. 2) G. Storm virðist þó ekki vera á þeirri skoðun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.