Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 68

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 68
56 EIMREIÐIN hann hreint og beint gróinn við jörðina, svo að ég togaði þéttings- fast í frakkalafið hans. En það var engn líkara en hann tæki ekki eftir því. Þetta var alveg gagnstætt við mömmu, sem alltaf var vön að ávíta mig, ef ég sýndi þrálæti, og segja: „Larry, ef þú hagar þér ekki betur, þá skaltu eiga mig á fæti.“ Ég gaf honum hornauga rannsak- andi, velti því fyrir mér, hvort ég ætti að fara að skæla, en mér sýnd- ist hann eitthvað svo fjarlægur, að slíkt mundi ekki hræra við honum. Það var eins og maður gengi við hliðina á fjalli. Ýmist tók hann ekkert eftir því, þótt ég þrifi i hann, eða hann skotraði augunum niður til mín rétt eins og honum væri skemmt. Aldrei hafði ég fyrir- hitt nokkurn svo upptekinn af sjálf- um sér. Þegar við settumst við teborðið, var aftur byrjað að „tala við föður þinn.“ Nú snerust samræðurnar um kvöldblaðið, sem hann lagði frá sér annað veifið og sagði henni fréttir úr. Að mínu áliti var þetta hreinn fláttskapur. Ég var reiðubúinn að keppa við hann um athygli mömmu að jöfnum leik, en þegar hann gat barizt með vopnum, sem aðrir lögðu honum upp í hendur, urðu sigurhorfur mínar harla litlar. Hvað eftir annað reyndi ég að skipta um umræðuefni, en það kom fyrir ekki. „Þú átt að hafa lágt, meðan pabbi er að lesa, Larry,“ sagði mamma óþolinmóð. Það leyndi sér ekki að henni fannst meira varið í að tala við hann en mig eða þá að hann liafði einhver heljartök á henni, svo að hún þorði ekki að segja eins og henni fannst. „Góða mamma mín,“ sagði ég, þegar lnin var að breiða ofan á mig um kvöldið. „Heldurðu ekki, að guð sendi pabba aftur í stríðið, ef ég bæði liann ósköp vel?“ Hún virtist hugsi stundarkorn. „Nei, væni minn,“ sagði hún og brosti við. „Það held ég, að liann mundi ekki gera.“ „Og af hverju ekki, mamma?" „Af því að stríðið er búið, væni minn.“ „En mamma, guð gæti búið til nýtt stríð, ef hann bara vildi.“ „Nei, drengur minn. Það er ekki guð, sem býr til stríð, það eru bara vondir menn.“ „Svo—já,“ svaraði ég. Þetta voru nú meiri vonbrigðin. Mig fór að gruna, að guð væri ekki eins mikill og ég hafði lialdið hann vera. Ég vaknaði snemma næsta morg- un, eins og ég var vanur, og það sauð enn í mér. Ég samdi langt samtal, þar sem frú Hægri kvart- aði undan öllu því stríði, sem hún hefði átt í við föður sinn, unz hann komst á sin7i stað. Mér var reyndar ekki vel ljóst, hvar þessi sinn staður var, en mér fannst það bara rétti staðurinn fyrir pabba. Því næst dró ég stólinn að glugganum. Það var tekið að birta af degi, en samt var eins og einhver sektarblær hvíldi yfir dagsbrúninni, og mér fannst engu líkara en ég hefði staðið mátt- arvöldin að verki. Ég var eins og fyrri daginn barnrafullur af fvrir- ætlunum og læddist nú inn til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.