Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 102

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 102
90 EIMREIÐIN Og trúarjátningu skáldsins er að finna á bls. 142 í þessum orðum: „Mér finnst eilífðarþráin, eða eigum við að segja eilífðarvissan, allt of djúp- stæð í mannlegu eðli til að geta verið markleysa . . .“ Þegar hann lítur yfir farinn veg og yfirvegar lífið, segir hann á bls. 144: „Um flest okkar er því svo farið, að við kunnum lítið með lífið að fara og gloprunt því út úr höndunum á okk- ur. Það hef ég lika gert. Samt lief ég aldrei gert mér upp þær annir, að ég gæfi mér ekki tíma til að dást að því, sem ntér hefur þótt fallegt . ..“ Já, það er margt vel sagt og skarp- lega athugað í þessari bók, en maður hefur það helzt út á hana að setja, að hún sé of stutt, og að skáldið hljóti að eiga margt ósagt. En menn sætta sig við það í þeirri von, að sitthvað af því fái þeir að heyra í næstu ljóðabók Tómasar Guðmundssonar. Bragi Asgeirsson listmálari hefnr myndskreytt bókina, en þótt teikning- ar hans beri vitni listrænu liandbragði, verða |>ær bókinni til lítillar prýði; er þar annað hvort um að kenna liroð- virkni prentmyndagerðarmannanna eða handvömm prentaranna. /. K. Iiirgir Kjaran: FAGRA LAND. Ferða- pistlar og frásöguþættir. — Bókfells- útgáfan. Þetta er ein fríðasta bók að ytri og innri búnaði, sem kom á markaðinn x kauptíðinni fyrir jólin í vetur. Elún flytur 23 ferðasögur og þætti og í henni eru margar fallegar myndir, sem höfundurinn hefur flestar tekið sjálf- ur, en nokkrar eru eftir ferðafélaga hans. Birgir Kjaran hefur, sem kunnugt er, lengi verið mikilvirkur og smekk- vís bókaútgefandi, en lítt hefur hann látið á sér bera sem rithöfundur sjálf- ur. Hann hefur komið á framfæri mörgum góðum verkum annarra höf- unda, en hér er hann í tvöföldu hlut- verki: bæði sem rithöfundur og út- gefandi, og ferst hvorutveggja vel úr hendi. Fagra land er óður til lands og sögu, sem oft og tíðum verða ekki aðgreind- Þættirnir fjalla um ferðir höfundar og félaga hans innanlands, og hann jxarf engan veginn að fara neinar lang- ferðir til þess að koma auga á frásagn- arverða hluti. Hann er næmur skoð- andi, sem sér fegurð og litbrigði lífs- ins í ýmsu því smæsta, sem flestuiu yfirsést í hraða og fálmi hversdagsins. Stíllinn er víðast látlaus en ljóðrænn, og fellur vel að efni því, sem um er fjallað hverju sinni. Höfundurinn lýs- ir litum og lífi, gróðri og grjóti, vatm og ís, mönnum og dýrum — ávallt með jákvæðri afstöðu, en ívaf margra frá- sagnanna er saga og skáldskapur, og jxað er einmitt þessi „komposition‘‘> sem gerir bókina bæði sérstæða og hugnæma. Þetta er lofgerð til íslenzkr- ar náttúru, eins konar ættjtxrðarkvæði, án stuðla, en borið uppi af hlýjuin tilfinningum. Það leynir sér ekki að höfundurinn er glöggur náttúruskoð- ari, og í Fagra landi gefur hann les- endunum hlutdeild í því sem hann hefur séð og notið. /. K. Jón Eyþórsson: VATNAJÖKULL- Desemberbók Almenna bókafélags- ins. — 72 myndir, margar heilsíðu- rnyndir. Prentsmiðjur: Oddi h.f. og Offsetpr. Litbrá. Það var ekki seinna vænna að gefa út vandaða myndabók af mesta jökh vorum og álfunnar, sýna þar með, að hægt er að taka góðar myndir af öðru en skógarliríslum og uppstillingum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.