Eimreiðin - 01.09.1963, Page 60
244
EIMREIÐIN
Til óvinar
Ég fyrirlít vini mína meira en þig,
Ég þrdði að þekkja sjálfan mig, en þeir skyggðu á spegilinn
og máluðu á hann mannkosti þá er ég þráði.
— Þú komst og skófst i burtu falska málninguna
svo ég varð visari, og fyrirleit sjálfan mig en ekki þig,
því í speglinum sem þú fœgðir
sá ég þig og mannkosti j)á er ég hafði eignað mér.
N ámamaðurinn
Þessir ofanjarðarmenn segjast þekkja þig jarðarhnöttur, —
þeir Ijúga.
Þú ert faðir minn og þögnin sem ég vinn við er móðir miu-
---Aðeins sonur þekkir föður sinn.
Við erum likir. Svartstokknir, þöglir erum við, bognir
undir oki þekkingarinnar.
Ég drekk og djöflast með bræðrum minum þegar ég er
ofanjarðar,
eins og önnur börn gleymi ég foreldri mínu.
En þú þrýstir mig örmum á ný, — ég margborga augnabW<in
sem ég stal ofanjarðar.
Bakdyramegin á fjölbýlishúsinu
Ský sem sólin eða tunglið hafa aldrei. upplýst,
sltý sem ber litleysi ásjónu nýdrukknaðs manns,
hefir lit; augna þinna.
þú þjónustustúlka scm syngur um perur i sólskininu
og flysjaðar ferskjur sem þú týndir eittsinn
þegar ísugráu augun þín voru lifandi.....
Á dyraþrepinu fyrir ofan eru tvœr konur.
Andlit þeirra eru brún eins og leirflag sem aldrei hefur
orðið vott.