Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Page 64

Eimreiðin - 01.09.1971, Page 64
128 EIMREIÐIN vinsamlegri umsögn sinni um um- rædda bók, þá nýútkominni (Heima er bezt, marz, 1970): „Engum, sem til þekkir, bland- ast hugur um, að séra Jón Bjarna- son var einn af merkustu fslend- ingum sinnar samtíðar. Fór þar saman leiítrandi gáfur, andríki og umfram allt foringjahæfileikar og stórbrotinn p'ersónuleiki. Starf það er hann vann meðal Vestur-íslend- ínga var svo stórfellt og margþætt, að seint verður metið til fulls, 'enda þótt trúarskoðanir lians hafi löng- um orkað tvímælis.“ Það er þessi stórbrotni og áhrifa- mikli leiðtogi og menningarfröm- uður íslendinga vestan hafs, sem séra Runólfur segir frá í bók sinni um hann. Höfundur rekur þar ævisögu hans frá vöggu til grafar, og þáttamörg var hún sagan sú. Ekki verður hún samt endursögð hér, en þó vil ég benda á 'eitt at- riði, sem mér er ekki kunnugt um, að áður hafi verið gerð veru- leg skil á því, sem um séra Jón hefir verið ritað. Það ,er blaða- mennska hans meðal frænda okkar Norðmanna vestan hafs á fyrstu árum hans þar, 'en um það ritar séra Runólfur allítarlega, sérstak- lega um ritstjórn hans á norska blaðinu Budstikken (Boðberinn) í Minneapolis (21. marz 1876— 10. okt. 1877) eftir hinum beztu heim- ildum. Fórst honum ritstjórnin vel úr hendi, og var hér um að ræða lrreint ekki ómerkilegan Jrátt í ævi- starfi séra Jóns. En það mikla starf var, eins og viðkunnugt er, aðall'ega unnið meðal landa hans vestan liafs, fyrst og fremst í kirkjumálum Jreirra, en einnig í þeirra þágu og ættlands- ins, beint og óbeint, á víðtækari menningarlegum grundvelli. Þessu umfangsmikla og ómetan- lega starfi séra Jóns — því að Jjað var það, m'etið í Ijósi sögunnar — lýsir séra Runólfur mjög ná- kvæmlega í ævisögunni, og fer þar eftir hinum beztu heimildum, og sérstaklega Sameiningunni, mál- gagni kirkjufélagsins, sem séra Jón ritstýrði frá Jjví að hún hóf göngu sína 1908 og til dauðadags 3. júní 1914. En forseti kirkjufélagsins var hann í 23 ár, frá stofnun þess 1885, þangað til hann færðist undan end- urkosningu á kirkjujaingi 1908. Hefir séra Runólfur tekið Jaann kostinn að fylgja sem trúlegast fundargerðum frá kirkjuþingum, ræðum og fyrirlestrum séra Jóns, og öðrum heimildum, og láta Jnær tala sínu máli. Hefir sú aðferð vit- anlega mikið til síns ágætis, og Jaó um annað fram hinn trausta sögu- lega grundvöll frásagnarinnar, en leiðir liins vegar til æði mikilla upptalninga. Kemur Jaar einnig fram, sem óhjákvæmilegt var í ævi- sögunni, hve oft séra Jón varð að hefja upp sitt sverð til sóknar eða varnar trúarlegum skoðunum sín- um, en hann varð fyrir þær mjög

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.