Eimreiðin - 01.01.1972, Qupperneq 21
EIMREIÐIN
halda áfram ac5 vera menn með mönnum; hluti af þeirri menn-
ingarheild, sem við upphaflega heyrðum til i Evrópu. Til þess
verðum við að yfirvinna einangrunina, yfirvinna fjarlægðina
°g halda eðlilegu sambandi við umheiminn. Þetta hefur okkur
tekizt vel á blómaskeiðum okkar, en mistekizt á erfiðum tím-
nm. Líklega hefur efnahagur þjóðarinnar ráðið mestu um, hvort
þetta hefur tekizt vel eða illa. En þegar vel hefur tekizt, höfum
við getað staðið öðrum fæti í Evrópu, eða í hinum stóra heimi,
en hinum í einangrun eyjaskeggjans og þá hefur okkur tek-
!zt að móta sérstæða islenzka inenningu, sem á vissum tímabil-
um hefur náð mikilli blómgun.
Ég tel því, að það sé á algjörum misskilningi byggt að óttast,
að við förumst i þeiin stóra heimi. Hættan liefur aldrei verið i
þvi fólgin og verður varla i bráð. Hættan er miklu frekar sú, að
okkur takist ekki að halda eðlilegu sambandi við umheiminn.
ST J ÓRNMÁL AÞÁTTT AK A
Hyggur þú á beina þátttöku í stjórnmálum?
J-H.: Nei, það geri ég ekki. Ég hef fengið nóg af stjórnmála-
afskiptum. Þau eiga ekki við mig og hafa líklega aldrei átt. Þar
með er ekki sagt, að ég liafi ekki áhuga á stjórnmálum eða skoð-
anir á þeim. En ég hef starfað á öðrum vettvangi, sem ráðunautur
stjornmálamanna og samstarfsmaður þeirra, bæði hér á landi
°g erlendis. Mér hefur líkað það vel og held, að ég hafi gert
meira gagn með því móti heldur en ég hefði gert með beinni
stjórnmálaþátttöku.