Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.1947, Side 19

Ægir - 01.04.1947, Side 19
Æ G I R 113 Jjá voru alls gerð út. Að undanteknum þeim tíma, sem síldveiðarnar stóðu yfir, mátti heita að flestir bátar í fjórðungnum stund- uðu þessar veiðar. Þátttakan í þorskveið- unum var þó minni heldur en hún hafði verið 1945, sem stafar af fækkun bátanna, svo sem áður liefur verið getið. Botnvörpuveiði í salt var aðeins stunduð í septembermánuði af einu skipi, en sú veiði hefur ekki verið stunduð af skipum í fjórðungnum frá því árið 1942. Botnvörpuveiði í ís var hins vegar stund- uð af öllum botnvörpuskipunum framan af árinu og fram á sumarið og auk þess af tveimur til þremur vélbátum um haustið og framan af vetri. Um dragnótaveiðarnar er svipað að segja og annars staðar við landið, að þær voru minna stundaðar þetta ár en verið hefur undanfarið og aðeins um sumarið og haustið. Mest voru 11 bátar við þær veiðar og var það í september. Stafar þessi minnk- andi þátttaka í dragnótaveiðunum meðal annars af því, að áður voru þær aðallega slundaðar af minni bátum, en margir af þeim bátum bafa einmitt ekki verið gerðir iit á árinu, meðal annars vegna aukinnar þátttöku í síldveiðunum, þannig að vinnu- aflið, sem annars hefði verið notað á þessa báta, hefur verið tekið til síldveiðanna, svo og vegna þess, að erfiðleikar voru á hag- nýtingu aflans. Þáttakan í síldveiðum með herpinót í júlí og ágúst var nú nokkru meiri en árið áður, vegna fjölgunar þeirra skipa, sem þær veiðar geta stundað. Tala bátanna var nú mest 36 í ágústmánuði, en hafði verið hæst 24 í sama mánuði árið áður. Reknetjaveiðar voru einnig stundaðar í ágústmánuði og þó aðallega í september- mánuði eftir að herpinótaveiðunum lauk, og voru bátarnir flestir 20 í þeim mánuði. Aðeins tvö skip stunduðu ísfiskflutninga þrjá fyrstu mánuði ársins, og er það sama að segja og annars staðar á landinu, að eftir vertíðina voru engin skip í þeim flutn- ingum. Telja má, að árið 1946 hafi verið í góðu meðallagi um aflabrögð yfirleitt. Framan af vetrarvertíðinni var mjög stormasamt svo sjaldan gaf til veiða, enda var þá víðast rýr afli. Þegar kom fram í miðjan febrúar glæddist aflinn til muna, enda gerði þá staðviðri svo að þorskveiðar voru stund- aðar uppihaldslaust um þriggja vikna skeið eða lengur og aflinn þá hvervetna góður. Um sumarið voru fiskveiðar lítt stundaðar. Dragnótaveiðar voru aðeins stundaðar af mjög fáum bátum, af ástæðum, sem áður getur. Þó var afli góður í dragnót, þar sem þær veiðar voru stundaðar að staðaldri og var talið, að mikið væri af flatfiski í ísa- fjarðardjúpi um haustið. Um haustið var óvenju lítið um sjósókn í Vestfirðinga- fjórðungi, en víðast livar var aflinn sæmi- legur og sums staðar allgóður. c. Norðlendingafjórðungur. Enginn botnvörpungur var gerður út i Norðlendingafjórðungi á þessu ári og að- eins tvö línugufuskip hluta úr árinu. Mótorbátar yfir 12 rúml. voru flestir gerðir út og þó var tala þeirra lægri en hún hafði verið árið áður. Hófu nokkrir þeirra veiðar þegar í febrúar og fór fjölgandi eftir því sem leið á veturinn og vorið, en fleslir voru þeir gerðir út á síldveiðarnar, 55 að tölu. Samanborið við árið áður er þetta heldur minni þátttaka, en þá var hún jafn- ari, þótt þá væru aðeins 52 bátar á síld- veiðum. Þelta gefur þó ekki rétta mynd af tölu þessara báta á vetrarvertíð í fjórðungn- um, með því að allmargir bátar víðs vegar að flytja sig til Suðurlands á vetrarvertíð. Um haustuð stunduðu aðeins fáir bátar veiðar. Mótorbátar undir 12 rúml. voru mjög fáir gerðir út á árinu og hefur farið ört fækk- andi undanfarin ár. Voru þeir aldrei fleiri en 8, í maimánuði, og voru þeir því nær helmingi færri en á fyrra ári. Er það sama þróunin og alls staðar annars staðar, að hinir litlu bátar hverfa alveg úr sögunni. Svipað er að segja um opnu vélbátana, þeim hefur farið ört fækkandi og voru flestir gerðir út 58 í júlímánuði, en 101 í

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.