Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1947, Blaðsíða 49

Ægir - 01.04.1947, Blaðsíða 49
Æ G I R 139 foætzt við 5 frystihús frá árinu áður. Ekki voru þó öll hraðfrystihúsin starfrækt til fiskfrystingar á árinu, því að 5 tóku aldrei á móti fiski til frystingar. Vegna fjölgunar frystihúsanna og einn- ig vegna viðbóta og aukninga á hinum eldri húsum, varð nokkur afkastaaukning á ár- inu, svo að talið var að í árslok hafi af- kastageta allra hraðfrystihúsa í landinu verið um 700 smál. af flökum á sólarhring, on árið 1945 var afkastagetan áætluð um 055 smál. á sólarhring. Mun láta nærri, að afkastageta frystihúsanna á sólarhring á árinu 1946, samsvari rúmlega 2000 smál. af fiski upp úr sjó. í töflu XXIV gefur að líta yfirlit yfir innkeypt fiskmagn til frystihúsanna í hverjum mánuði ársins 1946, skipt eftir fisktegundum. Vetrarvertíðin, eða nánar til tekið tímabilið frá febrúar til maí, er aðal starfstími hraðfrystihúsanna. Að vísu hefst vetrarvertíðin að jafnaði snemma í janúar viðast hvar, en í þeim mánuði hef- ur frysting sjaldan veiáð nema rétt að L'yrja og afli oft heldur tregur eða gæftir styrðar og svo var á árinu 1946. Á tímabil- inu febrúar—maí komu rúmlega 78% af þeini fiski til hraðfrystihúsanna, sem þau tóku á móti á árinu, eða því nær 58 þús. smál., og voru mánuðirnir marz og apríl hæstir með á 18. þús. smál. hvor. Er það mesta magn, sem nokkurn tíma hefur ver- ið fryst í einum mánuði hér á landi. Eftir að vertíð lýkur og einkum um sumarið, er frysting að jafnaði lítil, enda er þá allur þorri skipa við síldveiðar og var svo einnig að þessu sinni. Voru það aðallega frysti- húsin á Vestur- og Norðurlandi, sem tóku iisk til frystingar á þeim tíma svo og um haustið. Minnsta fiskmagnið, sem fór til trystihúsanna, var í septembermánuði og hefur svo oft verið undan farin ár, en að þessu sinni voru það tæplega 800 smál. Ekki urðu mildar breytingar á samsetn- ingu þess fiskmagns, sem fór til frystihús- anna, að því er tegúndir snertir. Má sjá á eftirfarandi yfirliti hver hluti hinna ein- stöku fisktegunda var í fiskmagni því, sem fór til hraðfrystihúsanna á árinu 1946 og 1945. 1946 1945 Skarkoli 1.3 % 0.6 % Þykkvalúra 0.3 — 0.2 — Langlúra 0.0 — 0.1 — Stórkjafta 0.0 — 0.0 — Sandkoli 0.0 — 0.1 — Heilagfiski 0.4 — 0.4 — Skata 0.0 — 0.0 — Þorskur 91.1 — 89.8 — Ýsa 2.6 — 1.9 — Langa 0.7 — 0.4 — Steinbítur 2.7 — 3.8 — Keila 0.2 — 0.3 — Karfi 0.3 — 0.2 — Ufsi 0.4 — 0.4 — Síld 0.0 — 1.8 — Hluti þorsksins, sem ávallt hefur verið slærstur í mörg undanfarin ár, var að þessu sinni 91.1%, eða svipað því, sem yerið hefur nú nokkur undanfarin ár. Af því leiðir aftur, að hluti annarra fiskteg- unda er rnjög óverulegur og er þar þó hæstur steinbíturinn, með 2.7%, og ýsan með 2.6%, og hefur ýsan heldur aukizt frá því sem var árið áður, en steinbíturinn heldur minnkað. Hluti flatfiskanna var svipaður og undanfarin ár, eða samanlagt um 1.7%, en þar hefur skarkolinn lang mestan liluta, eða 1.3%. Ýmsar flatfiskteg- undir, svo sem langlúra, stórkjafta og sandkoli, eiga svo lítinn hluta hér, að vart er teljandi. Á árinu 1945 hafði verið hrað- fryst nokkuð magn af síld til útflutnings, en á því varð ekki teljandi áframhald á árinu 1946, þar sem aðeins tæplega 13 smál. voru þannig hagnýttar. Ekki er þó þar með sagt, að ekki geti orðið áframhald á þessari framleiðslu, heldur má þvert á móti gera ráð fyrir, að í framtíðinni verði allmikið hraðfryst af síld til útflutnings. Það leiðir af sjálfu sér, þar sem hlutur þorsksins í fiskmagninu er svo yfirgnæf- andi, að hann er að langmestu leyti veidd- ur á vetrarvertíðinni til maíloka. Um aðrar fisktegundir gegnir nokkuð öðru máli. Eru ýmsar þeirra veiddar á öðrum tímum árs,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.