Ægir - 01.04.1947, Page 63
Æ G I R
153
30 m. Bryggjubreidd 5,5 m. Dýpi við
bryggju er 4—5 m.
A IJúsavík var hafnargarðurinn, sem
jafnframt er bryggja, lengdur um 40 m á
sumrinu og var þá samtals orðinn 183 m
langur, talið frá Höfðanum. Dýpi við garð-
enda er um 6,0 m. Breidd garðsins er
10.5 m. Jafnframt voru steypt tvö ker á
braut 10X10,5 m hvort, úr járnbentri
steinsteypu, en ekki vannst tími til að setja
þau fram og koma þeim fyrir.
Á Dalvík var hafnargarðurinn ekki
lengdur á árinu, en lokið var við timbur-
bryggjuna innan á garðinum. Garðurinn
sjálfur, sein er grjótgarður með steyptri
krónu, 3,0 m breiðri efst með járnbentum
skjólvegg á ytri brún, er nú 230 m langur
frá bakka. Trébryggjan hefur 185 m kant-
lengd og' er breidd hennar á fremstu 50
m 8,0 m, en dýpið frá 5,0—6,0 m. Þar ofan
við er breidd bryggjunnar 7,0 m. Lokið var
við um 1600 m2 uppfyllingu innan við
garðinn. Er steyptur veggur framan við
uppfyllinguna og liggur hann við stór-
straumsfjöruborð.
Á Ólafsfirði er í smíðum bátakví og er
ytri garðurinn byggður úr grjóti með
steyptri krónu yfir, 4,5 m breíðri efst. Var
garðurinn fullgerður í 145 m lengd, en
grjót lagt í 20 metra þar l'raman við, en
ekki vannst tíma til þess að steypa yfir
þann kafla. Dýpið við garðendann er um
7.5 m. Innri garðurinn er gerður úr þétt-
reknum stauraþilum, sem haldið er saman
með járnboltum, en grjótfylling á milli
og þekja úr járnbentri steinsteypu yfir.
Hann er nú 190 m langur frá bakka.
Gerð var um 1000 m2 uppfylling úr grjóti
innan við gömlu bryggjuna og stevj)t yfir
nokkurn bluta hennar.
í Ólafsvik var unnið að dýpkun i kviar-
opinu og upp með bryggjunni, með spreng-
ingum, því að klöpp er þar í botni.
í Neskaupstað var Iokið við smíði drátt-
arbrautar fyrir um 100 tonna skip. Lengd
liliðarbrautanna er um 300 m.
Á Flatey á Skjálfanda voru steypt á
braut tvö ker 6X7 m úr járnbentri stein-
steypu til framlengingar bátabryggjunnar.
Annað kerið var sett niður og bryggjan
lengd um tæpa 10 m.
í IJöfn í Bakkafirði var steyptur garður
út á svonefnt Hlass, 62 m langur, og byrj-
að á uppfyllingu með bátadýpi innan við
garðinn.
Á Vopnafirði voru steypt tvö ker úr járn-
bentri steinstevpu, 6X1Ö m hvort, til fram-
lengingar bryggjunnar, og er ætlunin að
koma þeim fyrir á þessu sumri. Við það
lengist bryggjan um 18 m, og verður dýpið
Aið bryggjuhaus 4,0 m, bryggjubreiddin
10 m.
Á Eyrarbakka var fullgerð bátabryggja,
við svokallaðan Festarstein, með 12 m við-
legukanti með 2,5 m dýpi um fjöru.
Á Stokkseijri var unnið nokkuð að
dýpkun á innsiglingunni með því að
sprengja klöpp í botni.
Á Drangsnesi var komið fyrir nokkrum
steinkerum, sein mynda nýjan aðlegu-
kant sunnan við bryggjuna.
Á Sveinseyri við Tálknafjörð var hafin
l'ygging bátabryggju.
Á Bæjum við ísafjarðardjúp var bætt
einu keri framan við bátabryggjuna.
í Gerðum í Garði var unnið að framhaldi
bátabryggj unnar.
Byrjað var á ferjuhöfn að Katanesi við
Hvalfjörð, en önnur slík höfn á að koma
beint andspænis, hinum megin fjarðarins.
í Vogum á Vatnsleijsuströnd var haldið