Ægir - 01.08.1949, Blaðsíða 19
Æ G I R
153
Tafla X. Tala fiskiskipa og fiskimanna í Norðlendingafjórðungi
í hverjum mánuði 1948 og 1947.
Botnv.- skip Linu- gufuskip Mótorbátar yfir 12 rl. Mótorb. u. 12 rl. Opnir vélbátar Árabátar Samtals 1948 Samtals 1947
Tala skipa Tala skipv. Tala j skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv.
Janúar 2 66 1 18 21 301 )) )) )) » )) )) 24 385 )) ))
Febrúar .... 2 66 1 18 26 345 1 7 17 60 )) )) 47 496 47 282
Marz 2 66 )) )) 8 75 1 7 20 71 )) )) 31 219 52 337
April 1 32 )) )) 20 184 2 12 53 155 )) )) 76 383 65 396
Maí 1 32 )) )) 35 303 6 45 78 220 )) )) 120 600 90 515
Júni 1 32 )) )) 19 160 2 12 54 124 )) )) 76 328 65 361
Júli 2 64 3 48 54 750 3 17 35 86 )) )) 97 965 82 1016
Ágúst 2 64 2 39 52 772 6 24 23 66 1 2 86 967 85 1029
September .. 2 64 2 38 46 665 3 11 50 161 1 2 104 941 55 343
Október .... 2 64 )) » 24 204 10 39 61 173 )) )) 97 480 54 303
Nóvember . . 2 64 )) )) 35 279 4 17 103 297 5 10 140 667 59 391
Desember.. . 2 64 )) » 6 62 )) )) )) )) )) » 8 126 22 369
ana. Siðar um haustið eða í nóvember og'
l'ram í desember voru gæftir oft mjög
stirðar, aðallega þó sunnan til á Vestfjörð-
um, en afli hins vegar sæmilegur og oft
ágætur norðan til. T. d. var talið, að frá
ísafirði liefði verið aflasæila og gæfta-
samara en um mörg undanfarin ár í
nóvemberuiánuði, en hins vegar voru
gæftir mjög stirðar í desember, en afli
oftast g'óður þegar gaf.
c. Norðlendingafjórðungur.
Togarar voru orðnir 2 í Norðlendinga-
fjórðungi á árinu og voru þeir gerðir út
mestan hluta ársins, syo! \sein sjá má í
töflu X, en þar er að finna yfirlit yfir
tölu fiskiskipa og fiskimanna í fjórð-
ungnum á árinu 1948.
Útgerð línugufuskipanna, sem að vísu
eru fá, var mjög stopul, þar sem aðeins
eitt þeirra var gert út til síldveiða uin
veturinn, en flest 3 til síldveiða aftur um
sumarið, en þess utan voru þau alls ekki
gerð út.
Á meðan sildveiðar stóðu yfir í Faxa-
flóa, framan af árinu, voru allmargir
mótorbátar yfir 12 rúml. frá Norðlend-
ingafjórðungi gerðir út, en að jafnaði
hefur lítið verið um útgerð þeirra báta
framan af árinu. En seinni liluta vetrar
og um vorið, aðallega i april og maí, var
löluvert um það, að þessir bátar væru
gerðir út til þorskveiða þar fyrir norðan,
og urðu þeir flestir í maímánuði 35 að
tölu. Aðalútgerðartimi þessari báta hefur
jafnaðarlega verið á sumarsíldveiðunum
og svo var einnig að þessu sinni. Voru þeir
flestir gerðir út í júlímánuði, 54 að tölu,
en eftir síldveiðarnar fækkaði þeim mjög,
enda jafnaðarlega ekki mikið um útgerð
stærri báta þar norðurfrá, þegar líður á
haustið og framan af vetri.
Útgerð mótorbáta undir 12 rúml. hefur
verið mjög lítil i Norðlendingafjórðungi
undanfarin ár, enda hefur þeim bátum
mjög fækkað þar, sem annars staðar. Að
Jiessu sinni er svipað að segja, að framan
af árinu var vart teljandi útgerð þessara
báta, en um sumarið og haustið voru þó
nokkrir jieirra gerðir út, og urðu þeir
flestir í októbermánuði, 10 að tölu.
Hins vegúr hefur ávallt verið töluvert
um útgerð opinna vélbáta á Norðurlandi
og var svo einnig að þessu sinni. Var
nokkuð uin útgerð þessara báta uin vorið
og' haustið, en hins vegar dró úr útgerð-
inni um sumarið eins og jafnan vill verða,
Jiegar sildveiðar standa yfir. í maímánuði