Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1949, Síða 21

Ægir - 01.08.1949, Síða 21
Æ G I R 155 stunduðu 123 bátar þær veiðar. Var hér um töluvert mikið meiri þátttöku að ræða en verið hafði árið áður, meðal annars vegna þess, að þá fóru allmargir bátar til síldveiða við Suðurland. Dragnótaveiðar voru stundaðar af nokkrum bátum um vorið og sumarið og fram á haustið. Var þátttakan í þessum veiðum nú nokkuð meiri en verið hafði árið áður, og urðu bátarnir flestir í nóvem- bermánuði 15 að tölu, en i maí voru þeir 14, þar sem aftur á móti árið áður höfðu aðeins verið gerðir út mest 4 bátar í sept- embermánuði, en annars aðeins 2 nokk- urn hluta sumarsins og haustsins. Var hér um að ræða sömu þróun og víðast hvar annars staðar við landið, að útgerð til dragnótaveiða var meiri en árið áður og verið liefur undanfarin ár. Sildveiðar með herpinót voru stundaðar af 19 bátum við vetrarsíldveiðarnar í Faxaflóa í janúar og febrúarmánuði og svo aftur um sumarið við Norðurland, þegar 55 bátar stunduðu þær veiðar flest i júlímánuði. Var það 4 bátum færra en verið hafði við síldveiðar árið 1947. Um haustið fór aðeins 1 bátur til síldveiða við Suðurland, en árið 1947 hafði tala bát- anna úr Norðlendingafjórðungi, sem þær veiðar stunduðu, verið mest 20 í desem- bermánuði. Sildveiðar með reknetjum voru ekki stundaðar af neinum bát að þessu sinni og er það óvenjulegt, þar sem jafnan hefur verið nokkuð um það, að bátar færu til reknetjaveiða að loknum herpinóta- veiðum, aðallega seint í ágúst og í sept- embermánuði. Vegna þess hversu gersain- lega síldveiðin brást, var ekkert um rek- netjaveiði að þessu sinni. Nokkur skip stunduðu ísfiskflutninga um vorið og' haustið enda var meginhlutinn af þeim fiski, sem fiskaður var bæði af línu- og togbátum, fluttur úr ísvarinn, þar sem möguleikar til hag'nýtingar á fiski í Norð- lendingafjórðungi eru mjög takmarkaðir vegna skor.ts á frystihúsum. Um haustið voru flest 8 bátar í þessum flutningum í nóvember. Gæftir og aflabrögð. Svo sem áður getur voru þorskveiðar töluvert stundaðar um vorið við Norðurland, og varð megin hlut- inn af þeim fiski fluttur út ísvarinn. Var afli þá oft mjög sæmilegur. Um sumarið var útgerð á þorskveiðar mjög lítil og þá helzt á smáum bátum, en um haustið var óvenju mikið um þorskútgerð og var þá einnig megin hluti fisksins fluttur út ís- varinn, en aðrir möguleikar til hagnýt- ingar á fiskinum eru mjög takmarkaðir eins og áður var um getið. Gæftir voru oftast sæmilega góðar um haustið og afli víðast livar einnig góður. d. Austfirðingafjórðungur. Yfirlit yfir tölu fiskiskipa og fiski- manna í Austfirðingafjórðungi er að finna í töflu XII. A árinu 1947 kom einn af hinum nýju togurum til Austurlands, en þá hafði um nokkurra ára skeið ekki verið um neina togaraútgerð að ræða í fjórðungnum. A árinu 1948 bættist svo við þennan flota, og urðu togararnir nú 3, sem gerðir voru út allt árið. Mótorbátar yfir 12 rúml. voru venju í'remur margir gerðir út í fjórðungnum á þessu ári og töluvert fleiri en verið hafði árið áður, sem stafaði meðal annars af því, að á vetrarvertíðinni fóru ekki eins margir bátar til veiða við Suðurland eins og tíðkazt hefur undanfarið. Á vertíðinni var tala bátanna mest 37 í marzmánuði, en fór siðan lækkandi er fram á vorið leið, en hins vegar urðu þeir 46 aftur í júlí- mánuði, þegar síldveiðarnar stóðu yfir. Um haustið var aftur töluvert um útgerð þessara báta, og voru þeir þá flestir í ok.tó- bermánuði, 32 að tölu. Samanborið við árið áður er hér, eins og áður segir, um töluverða aukningu að ræða. Þá voru bát- arnir flestir á vetrarvertíðinni 29 að tölu, en á síldveiðunum um 40. Um haustver- tíðina er hið sama að segja, að þá var lala bátanna einnig töluvert lægri en ár-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.