Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1949, Page 67

Ægir - 01.08.1949, Page 67
Æ G I R 201 Frá Bretlandi ........ 12 7 377 rúml. ~ Svíþjóð ............. 4 1 690 — — Danmörku .......... 3 4 437 — — Bandaríkjunum . 2 8 721 ■— Hin innfluttu skip skiptust þannig eftir flokkum: Togarar .............. 12 6 699 rúml. Vélbátar .............. 5 750 — Önnur skip ............ 6 14 776 — Samtals 21 22 225 rúml. Eins og áður getur voru allmörg skip tekin út af skipaskrá og voru þau 41 tals- ins, þar af 1 togari, sein seldur var til Sví- þjóðar. Alls hurfu af skipaskránui skip 1 321 rúml. brúttó, þannig að hrein viðbót við skipastólinn á árinu nam 21 006 rúml. og eru þá talin öll skip, sem komu til árs- loka. 11. Hafnargerðir og lendingarbætur. Akranes. Haldið var áfram við hafnar- gerð þá á Akranesi, sein nú hefur verið unnið að um nokkur ár. Ker það, sem setja átti niður árið áður, en var ekki lokið við, var nú sett á sinn stað, en þó tók það alll sumarið og fram á haust áður en því væri iokið. Borgnrnes. Við enda hafskipabryggj- unnar í Borgarnesi var hlaðinn grjótfljái og auk þess voru sett ný hlífðartré á efri hluta bryggjunnar. Ólafsvík. Þar var bryggja, sem upphaf- iega var byggð hallandi, en um sumarið var unnið að því að hækka hana, þannig að hún stendur nú upp úr venjulegu stór- straumsflóði í fullri lengd. Einnig var unnið að undirbúningi fyrirhugaðrar leng- ingar hafnargarðsins og steypt steinker. Salthólmavik. í Salthólmavík var hafizt banda um dýpkun á rás upp að báta- hryggjunni. Flatey á Breiðafirði. í Flatey var gerð hafskipabryggja og er dýpið við hana um ijöru um 5 m. Er þar um að ræða staura- bryggju 8 m á breidd og um 47 m á lengd. Aður hafði verið steyptur þar bryggjustúfur um 13 m á lengd. Auk þessara framkvæmda var gerð uppfylling undir frystihús, sem þar á að byggja og lagður vegur. Patreksfjörður. Haldið var áfram ineð smíði Patrekshafnar á Vatneyri og lokið við að steypa bátabryggju þá, sem ligg- ur fyrir botni kvíarinnar og steypt þekja yfir hina bátabryggjuna. Steypu akkeris- plötunnar var lokið og öllum akkerisbolt- um með tilheyrandi útbúnaði komið fyrir. Oldubrjótur var gerður að vestanverðu við opið inn í skipakvína, og er hann um 40 m á lengd og nær út á um 2 m dýpi. Loks var byrjað að grafa niður í haftið inn í skipakvína frá landi. Bolungavik. I Bolungavík var haldið áfram að dýpka svæðið upp með brim- brjótnum. tsafjörður. A árinu 1947 var hafin undir- búningur að byggingu hafnarbakka i Neðstakaupstað og voru framkvæmdir haftiar á árinu 1948. Súðavik. Bátabryggja, sem var í Súða- vík, var nú stækkuð og er eftir slækkun- ina fær til viðlegu fyrir hafskip. Drangsnes. A Drangsnesi var bryggjan lengd um 4 m með 2 kerum og er breidd bennar 8 m. Dýpið við enda bryggjunnar er um 3—4 m um fjöru. Blönduós. A Blönduósi var sett niður steinsteypuker, sem gert var 1946 og steypt í 10 metra bil á milli kers og bryggju. I.engist bryggjan við það um 18 m, en breidd hennar er 10 m. Dýpið við enda bryggjunnar er um 3,5 in um fjöru. Ekki var þó unnt að fullgera viðbót þessa vegna skemmda, sem urðu i stórbrimi um haustið. Skagaströnd. Á Skagaströnd hefur um allmörg ár verið unnið að mikilli hafnar- gerð og var haldið áfram á þessu ári. Unnið var við byggingu austurgarðs báta- kvíarinnar, sem byrjað liafði verið á sumarið áður og rekið niður járnþil um 200 m á lengd. Ekki var þó lokið að ganga

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.