Ægir - 01.08.1949, Qupperneq 67
Æ G I R
201
Frá Bretlandi ........ 12 7 377 rúml.
~ Svíþjóð ............. 4 1 690 —
— Danmörku .......... 3 4 437 —
— Bandaríkjunum . 2 8 721 ■—
Hin innfluttu skip skiptust þannig eftir
flokkum:
Togarar .............. 12 6 699 rúml.
Vélbátar .............. 5 750 —
Önnur skip ............ 6 14 776 —
Samtals 21 22 225 rúml.
Eins og áður getur voru allmörg skip
tekin út af skipaskrá og voru þau 41 tals-
ins, þar af 1 togari, sein seldur var til Sví-
þjóðar. Alls hurfu af skipaskránui skip
1 321 rúml. brúttó, þannig að hrein viðbót
við skipastólinn á árinu nam 21 006 rúml.
og eru þá talin öll skip, sem komu til árs-
loka.
11. Hafnargerðir
og lendingarbætur.
Akranes. Haldið var áfram við hafnar-
gerð þá á Akranesi, sein nú hefur verið
unnið að um nokkur ár. Ker það, sem setja
átti niður árið áður, en var ekki lokið við,
var nú sett á sinn stað, en þó tók það alll
sumarið og fram á haust áður en því væri
iokið.
Borgnrnes. Við enda hafskipabryggj-
unnar í Borgarnesi var hlaðinn grjótfljái
og auk þess voru sett ný hlífðartré á efri
hluta bryggjunnar.
Ólafsvík. Þar var bryggja, sem upphaf-
iega var byggð hallandi, en um sumarið
var unnið að því að hækka hana, þannig
að hún stendur nú upp úr venjulegu stór-
straumsflóði í fullri lengd. Einnig var
unnið að undirbúningi fyrirhugaðrar leng-
ingar hafnargarðsins og steypt steinker.
Salthólmavik. í Salthólmavík var hafizt
banda um dýpkun á rás upp að báta-
hryggjunni.
Flatey á Breiðafirði. í Flatey var gerð
hafskipabryggja og er dýpið við hana um
ijöru um 5 m. Er þar um að ræða staura-
bryggju 8 m á breidd og um 47 m á
lengd. Aður hafði verið steyptur þar
bryggjustúfur um 13 m á lengd. Auk
þessara framkvæmda var gerð uppfylling
undir frystihús, sem þar á að byggja og
lagður vegur.
Patreksfjörður. Haldið var áfram ineð
smíði Patrekshafnar á Vatneyri og lokið
við að steypa bátabryggju þá, sem ligg-
ur fyrir botni kvíarinnar og steypt þekja
yfir hina bátabryggjuna. Steypu akkeris-
plötunnar var lokið og öllum akkerisbolt-
um með tilheyrandi útbúnaði komið fyrir.
Oldubrjótur var gerður að vestanverðu
við opið inn í skipakvína, og er hann um
40 m á lengd og nær út á um 2 m dýpi.
Loks var byrjað að grafa niður í haftið
inn í skipakvína frá landi.
Bolungavik. I Bolungavík var haldið
áfram að dýpka svæðið upp með brim-
brjótnum.
tsafjörður. A árinu 1947 var hafin undir-
búningur að byggingu hafnarbakka i
Neðstakaupstað og voru framkvæmdir
haftiar á árinu 1948.
Súðavik. Bátabryggja, sem var í Súða-
vík, var nú stækkuð og er eftir slækkun-
ina fær til viðlegu fyrir hafskip.
Drangsnes. A Drangsnesi var bryggjan
lengd um 4 m með 2 kerum og er breidd
bennar 8 m. Dýpið við enda bryggjunnar
er um 3—4 m um fjöru.
Blönduós. A Blönduósi var sett niður
steinsteypuker, sem gert var 1946 og
steypt í 10 metra bil á milli kers og
bryggju. I.engist bryggjan við það um 18
m, en breidd hennar er 10 m. Dýpið við
enda bryggjunnar er um 3,5 in um fjöru.
Ekki var þó unnt að fullgera viðbót þessa
vegna skemmda, sem urðu i stórbrimi um
haustið.
Skagaströnd. Á Skagaströnd hefur um
allmörg ár verið unnið að mikilli hafnar-
gerð og var haldið áfram á þessu ári.
Unnið var við byggingu austurgarðs báta-
kvíarinnar, sem byrjað liafði verið á
sumarið áður og rekið niður járnþil um
200 m á lengd. Ekki var þó lokið að ganga