Ægir - 01.08.1949, Blaðsíða 69
Æ G I R
203
byggt járnbent steinsteypuker á braut tii
frekari lengingar bryggjunnar. Fram-
bryggjan er nú um 43 m að lengd og 7 m
breið, en dýpi við enda bryggjunnar 4,3 m
um fjöru.
Borgarfiörður. Bátabryggja, sem þar var,
var lengd um 13 metra og er nú öll lengd
bryggjunnar um 114 m, en breiddin 5,5 m.
Ðýpið við enda hennar er um fjöru um
2 m.
Djúpiuogur. A Djúpavogi var gerð haf-
skipabryggja 36 m á lengd og 10 m á
breidd auk landgangs, sem var 20 m á
iengd og 8 m á breidd. Dýpið við bryggj-
una er um 5 m um stórstraumsfjöru.
Bryggjan er staurabryggja.
Höfn i Hornafirði. í Höfn var dýpkuð
renna úr Mikleyjarál og inn undir svo
nefnda Naust. Lengd rennunnar var allt
að 700 m, en breidd hennar við botn um
15 m. Dýpið reyndist 3—4 m um fjöru.
Settur var niður plankaveggur úr Naust-
um út í Ósland, og er lengd hans um 340
m. Var fyllt að vegg þessurn beggja vegna
með sandi. Loks var sett niður plankaþil
framan vikurinnar og fylt þar fyrir innan.
Vestmannaeyjar. Unnið var að dýpkun
i hafnarmynninu og innsiglingunni og var
þar um allmiklar framkvæmdir að ræða.
Eyrarbakki. Ytri bátabryggjan á Eyrar-
bakka var stækkuð og endurbætt og er
dýpið við hana liðlega 2 m um stór-
straumsfjöru.
Þorlákshöfn. Hafin var bygging haf-
skipabryggju í Þorlákshöfn í framhaldi af
bátabryggju, sem áður hafði verið gerð í
Suðurvör. Bryggja þessi er steypt og grjót-
fyllt með steyptri þekju og skjólvegg á
ytri brún. Lengd þess hluta, sem gerður
var um sumarið, var rúmlega 50 m, en
breiddin 10 metrar. Dýpið við enda bryggj-
unnar eins og hún var, er verkinu var hætt
um haustið, reyndist um 3 m um stó-
straumsfjöru. Þá voru steypt steinsteypu-
ker 3 að tölu, sem tilbúin voru, er hafnar-
gerðin hæfist aftur á árinu 1949.
Keflavik. Bátabryggjan í Keflavík, sem
hafin hafði verið bygging á áður, var
lengd um 37 m, og er þá öll bryggjan orðin
um 62 m á lengd. Er dýpið við enda
bryggjunnar nú um 4 m um fjöru. Breidd
bryggjunnar er 10 m. Er hún steypt og
grjótfyllt með einu steinsteypukeri fremst.
Auk þessara framkvæmda var unnið að
viðgerð á liafnargarði og hafskipa-
bryggju.
Njarðvík. í Ytri-Njarðvík var gerð báta-
bryggja 110 m á lengd og 10 m á breidd og
nær hún nú út á allt að 2ja m dýpi um
fjöru. Bryggjan er steypt og grjótfyllt.
12. Vitabyggingar.
Aðeins einn nýr viti var byggður á ár-
inu. Var það vitinn á Súgandisey við
Stykkishólm. Ljóshæð þessa vita er 31 m,
en sjónarlengd 10 sjóinilur.
Þá var haldið áfram endurbyggingu
vitahúsa, en mörg hinna gömlu vitahúsa
eru mjög' tekin að láta á sjá og þvi brýn
nauðsyn að byggja ný.
Þannig voru á árinu endurnýjuð vita-
liúsin á Bjargtanga, Höskuldsey og Ingólfs-
höfða.