Ægir - 01.08.1949, Síða 70
204
Æ G I R
13. Landhelgisgæzla
og björgunarstarfsemi.
Ægir var bundinn við vélaviðgerð í
janúarmánuði, en hóf í febrúarbyrjun
gæzlu við Vestmannaeyjar og sinnti lienni
frátafalítið lil 8. maí. Frá þeim tíma og
þar til í byrjun júlí var skipið að hálfu
leyti við hreinsun og' viðgerð og að hálfu
leyti við yfirlitsgæzilu. í byrjun júlí hófst
gæzla á síldveiðisvæðinu norðanlands, og
var skipið við hana þar til um miðjan
september, en þá hófst flokkunarviðgerð í
Reykjavík, og stóð hún fram yfir áramót
1948—49. Á árinu veitti Ægir öðrum skip-
um aðstoð eða björgun i 27 skipti, þar af
isl. fiskiskipum í 22 skipti og öðrum skip-
um í 5 skipti. Hann tók 9 skip fyrir land-
helgisbrot.
Óðinn lá í Reykjavik framan af árinu,
lil 23. júní, vegna isetningar nýrrar aðal-
vélar, en síðan var báturinn að mestu leyti
við Norðurlands- eða eftirlitsgæzlu það
sem eftir var ársins. Á árinu veitti Óðinn
2 fiskibátum aðstoð og tók eitt skip fyrir
ólöglegar athafnir í landhelgi.
Sæbjörg. Svo sem kunnugt er var sú
ákvörðun tekin af Slysavarnarfélagi ís-
lands á árinu 1945, að stækka Sæbjörgu,
skip félagsins, og setja í hana nýja vél.
En jafnframt gerði félagið samning við
Skipaútgerð rikisins um 15 ára leigu á
skipinu til landhelgisgæzlu og björgunar-
starfsemi. Breytingin á skipinu tók miklu
lengri tíma en upphaflega var áætlað, og
J>egar það loks átti að vera tilbúið í byrjun
apríl 1948, reyndist það ekki vel og kom
af þeim ástæðum ekki til starfs fyrr en í
byrjun júlí. Frá þeim tíma og til se])tem-
berloka var skipið við gæzlu norðanlands,
en að því búnu var það aftur tekið til at-
hugunar og viðgerðar i Reykjavík og stóð
svo fram til aprílloka 1949.
Á starfstíma Sæbjargar 1948 veitti bát-
urinn islenzkum fiskibátum aðstoð í 10
skipti og frystiskipið Vatnajökul dró hún
vélvana frá Óilafsvik til Reykjavíkur. Sæ-
björg tók eitt skip, erlent, fyrir ólöglegar
athafnir í landhelgi.
Faxaborg RE 126 (109 br. tonn, véla-
orka 200 hö.) var leigð til gæzlu frá 1. okt.
ti! 31. des. Athafnasvæði skipsins var aðal-
lega í Faxaflóa og grennd. Það veitti á
þessum tíma fiskibátum aðstoð i 31 skipti
og tók 6 skip fvrir landhelgisbrot.
Finnbjörn IS 24 (79 br. tonn, vélaorka
215 bö.) var leigður til gæzlu frá 1. jan. til
15. maí og frá 2. nóv. til 31. des. Athafna-
svæði bátsins var aðallega á Vestfjörðum.
Á starfstímanum veitti hann 4 fiskibátum
aðstoð.
Vikingur GIÍ 277 (37 br. tonn, vélaorka
160 hö.) var leigður til gæzlu frá 1. júni
til 10. nóv. Gæzlusvæðið var aðallega Faxa-
flói og grennd. Á starfstímanum veitti bát-
urinn öðrum bátum aðstoð í 9 skipti og'
tók 2 skip fyrir botnvörpuveiðar i land-
helgi.
Nanna SU 24 (br. stærð 53 tonn, véla-
orka 192—240 hö.) var leigð til gæzlu frá
4. júní til 14. ágúst. Gæzlusvæðið var sunn-
an lands og austan.
Hrafnkell NK 100 (91 br. tonn, vélaorka
260 hö.) var leigður til gæzlu frá 15. ágúsl
til 30. nóv. Gæzlusvæðið var aðallega við
Austurland.
Fluggæzla. Flugvélar voru öðru hvoru
teknar á leigu til landhelgisgæzlu og er
vafalaust, að það hafði nokkra þýðingu
til J)ess að skapa aðhald. í einni flugferð-
inni voru 6 togbátar kærðir fyrir veiðar i
landhelgi og allir dæmdir í sekt.
Eyðing tundiirdiifla. Á árinu 1948 sökktu
varðskipin 5 tundurduflum, er sáust á
siglingaleiðum við landið, en 78 dufl er á
land rak voru gerð óvirk af mönnum starf-
andi á vegum Skipaútgerðar ríkisins.
Fylgir hér nánara ylirlit varðandi tundur-
dufl, sem gerð hafa verið óvirk eða sökkt
á árunum 1940—1948.