Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1980, Síða 17

Ægir - 01.02.1980, Síða 17
Ser félag til að gæta hagsmuna sinna og var það jjefnt Smábátaeigendafélagið Huginn. 4 árum áður öfðu menn leitað ásjár Hafrannsóknastofnunar- jnnar eða Atvinnudeildar Háskólans eins og hún ét þá, vegna aflabrestsins. Hefur hún ekki sleppt endinni af rækjuveiðimönnum síðan, þótt segja ^negi að samkomulag þar í milli hafi ekki ætíð verið eins °S dans á rósum. Þriðji aðili, þ.e. sjávarút- 'egsráðuneytið, blandaðist með auknum áhrifum lnn í rækjuveiðimálin. Myndaðist oft hin mesta gstreita milli sjómanna annarsvegar og þessara raðgefandi og ráðandi aðila hinsvegar. Oft átíðum naðist ekkert samkomulag um tilhögun veiðanna, Pa var það að lokum ráðuneytið sem á hnútinn s ar og þá oftast eftir tillögu Hafrannsóknastofn- nnarinnar. ^argir hafa spurt hvað valdið hafi þessum óróa °g aesingi í kringum tilhögun þessara veiða? Hátt á annan tug ára hefur þeim verið stjórnskipað, einum aum veiðiaðferðum hér á landi. Rækjusjómenn sem höfðu reynslu í þessum málum sögðu: „Bíðið þið bara við, þar til farið verður að stjórnskipa öðrum veiðum, þá mun þar brjótast út órói og æs- ingur líka.“ Þetta er nú allt að koma á daginn. Þó að stjórnskipaðar veiðar geti verið nauðsynlegar eru þær geysilega vandmeðfarin mál, sem ekki verða þróaðar á skömmum tíma, þær munu um langan aldur valda hatrömmum deilum, ef ekki æfinlega. Þó Smábátafélagið Huginn hafi ekki starfað í mörg ár, þá hafa fundir orðið svo margir vegna hinna flóknu vandamála sem upp hafa komið við stjórnun þessara veiða að vel er komið á veg með að fylla tvær stórar fundargerðarbækur. Ekki mun á neinn hallað þó að þess sé getið að þar hafa unnið óeigingjarnt starf í þágu félagsins þeir Sigurjón Hallgrímsson og Guðmundur Guðjónsson, sem báðir hafa verið rækjuskipstjórar í langan tíma. Hliðstæður félagsskapur starfar í Bolungavík er nefnist Smábátaeigendafélagið Árvakur. Haustið 1960 fór Ólafur Sigurðsson á báti sínum Ásdísi og með honum Hjörtur Bjarnason, báðir kunnir rækjuskipstjórar til að kanna Ingólfsfjörð í því augnamiði að finna rækju. Fengu þeir frekar lítinn afla í fyrsta túr, en fóru fljótlega aðra ferð í samfloti með tveimur bátum, Bryndísi, skipstjóra Árna Magnússyni, og Morgunstjörnunni, skip- stjóra Garibalda Einarssyni. Árangur varð þokka- legur, 3-4 tonn á bát eftir 3ja daga úthald. Þetta var í fyrsta sinn sem rækja veiddist í Húnaflóa, enda bauð mönnum ekki í grun að svo gjöful mið leyndust í flóanum sem síðar varð raunin á. Vakti þessi árangur að vonum töluverða eftirvæntingu í hugum manna við Djúp, sem þá virtust ekki gera sér grein fyrir, eða öllu heldur ýttu til hliðar þeirri staðreynd, að miklir erfiðleikar og áhætta geta verið því samfara að sigla fyrir Strandir að haust- lagi á ekki stærri bátum en rækjumenn höfðu yfir að ráða. Enda kom það á daginn síðar að hér var ekki lambið að leika sér við. Haustið eftir lögðu svo þessir litlu bátar upp í veiðitúr fyrir Strandir á Ingólfsfjörð í byrjun nóv- ember. Fóru þeir allt upp í 4 túra þangað yfir mán- uðinn. Afli var góður og rækjan stærri en í ísafjarð- ardjúpi, og svo hefur hún alla jafna verið síðan farið var að veiða hana í Húnaflóa. Sama sagan endurtók sig 1962 að bátar fóru norður og voru þá fengin flutningaskip að flytja afla af þeim heim í Djúp. Það var svo í byrjun desember, sem sá at- burður skeði, sem kom mönnum til þess að átta sig á hversu miklar glæfraferðir þetta voru á litlum ÆGIR — 73

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.