Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1980, Side 32

Ægir - 01.02.1980, Side 32
fræðilegir útreikningar, sem byggðir eru á meðalafla á sóknar- einingu og stærðarsamsetningu aflans. Hér á eftir verður fjallað um nokkur líffræðileg einkenni rækj- unnar sem hafa verið rannsökuð hér á landi. Kynþroski eftir aldri og Iengd. Rækjutegundirnar tvær, stóri og litli kampalampi, eru með þeim fádæmum gjörðar frá nátt- urunnar hendi að þær skipta um kyn. Fyrst á ævinni eru þær karl- dýr, síðan eru þær um tíma á milli- stigi, en verða svo kvendýr upp frá því. Kyn og kynþroski er greindur af lögun fremstu hala- fóta. Þessi greining er nokkuð tímafrek og vandasöm, og hefur ekki verið gerð í það miklum mæli á rækju frá öllum svæðum, að unnt sé að bera saman kyn- þroska hænga milli svæða. Til þess að meta hvort hrygna er kyn- þroska má jafnframt nota ein- faldari aðferð, en það er að líta á hvort hún er græn í haus, þ.e. hvort hún er komin fast að hrygn- ingu, eða hvort hún ber egg á halafótunum. Reiknað erúthlut- fall kynþroska hrygna af öllum einstaklingum í hverjum lengdar- flokki. Meðalhlutfall er síðan reiknað út fyrir öll sýni sama vetrar þ.e. fram að klaki. Síðan eru niðurstöðurnar settar niður í línurit og ferill dreginn á milli punktanna. Á þann hátt má ráða í stærð og aldur þegar rækjan verður kynþroska hrygna. Hluti af hrygnunum verður yfirleitt fyrst kynþroska 3ja ára á grunnslóð, sjá 1. töflu. Undan- tekningar frá þessu eru hrygnur við Eldey og á Breiðafirði sem verða fyrst kynþroska 2ja ára, eða á Arnarfirði þar sem hrygnur verða fyrst kynþroska 4ra ára, en á djúpslóð virðast hrygnur eldri er þær fyrst hrygna. Rækjan á Dohrnbanka og Norðurkanti virðist hrygna fyrst sem 5 ára og þá lítill hluti, eðaaðeins um 3%af árganginum á Dohrnbanka. Á hverju ári bætast við fleiri kyn- þroska hrygnur í árganginn, sem hrygna í fyrsta sinn. Svo virðist sem hrygnurnar hrygni síðan árlega til dauðadags. Á grunnslóð virðast nær allar hrygnur frjóvgast. Við frjóvgun, er á sér stað við hrygningu, mynda hrognin lím sem límirþau við halafæturna. Misfarist frjóvg- un skolast hrognin burt og hrygnan er hrognalaus á hrogn- burðartímabilinu. Á djúpslóð virðast ekki nándar nærri allar hrygnur frjóvgast, ef borið er saman hlutfall hrygna sem eru grænar í haus og hlutfall hrygna með egg á halafótum þeg- ar hrygningu er að fullu lokið. Töluverður munur er á stærð dýra þegar hængar skipta um kyn og verða hrygnur, en 1. tafla ber einnig vitni um það óbeint, þar sem rækjan er i stuttan tima á millistigum milli kynþroska hængs og kynþroska hrygnu. Til þess að bera saman rækjustofna á ýmsum svæðum, hvað varðar hrygnuþroskann eftir lengd, er fundin sú lengd þar sem um helm- ingur einstaklinganna er kyn- þroska hrygnur, sjá 2. töflu Dohrnbankarækjan nær þessu helmingsmarki — hér eftir skamm- stafað hkl. þ.e. helmingskyn- þroskalengd hrygna — ekki fyrr en hún er 28-28,3 mm að skjaldar- lengd og er þannig þar að finna langstærstu hænga hér við land. I djúprækjustofnunum á Norður- kanti og Sporðagrunni og við Kolbeinsey eru einnig svo stórir hængar, að stærð þeirra liggur, töluvert yfir þeim mörkum þar sem þorri grunnslóðarækjunnar nær að verða frjóar hrygnur, sjá 1. töflu. Þar sem ekki er vitað til að þessi rækjutegund Pandalus borealis, skipti um kyn, úr hrygnu yfir í hæng aftur, er loku fyrir það skotið að djúprækjunni á fyrr- greindum svæðum berist endur- nýjun frá þekktum miðum á grunnslóð nema í formi lirfa og 2. lafla. Medallengd. þeirrar rœkju, þar sem um helmingur einstaklinga eru kynþroska hrygnur. Hiim hiuti sömu lenyilar eru kynþroska hœngar. millistiy og ókynþroska hrygnur. Vetur Svœöi Fjöldi sýna 1978-79 Fjöldi sýna 1977-78 Fjöldi sýna 1976-77 Dohrnbanki 3 28.3 2 28,0 3 28,0 Norðurkantur 6 23.5 4 22,5 3 23.3 Sporðagr. Kolbeinsev 7 22.5 5 21,6 Grímsev 6 20.2 1 21,1 Eldey 3 19.3 3 18,6 Breiðafjörður 1 18,8 Arnarfjörður 34 18,5 68 20,1 29 21.3 Jökulftrðir 17 18,5 4 18,2 16 17.5 Skötufjörður 8 18.0 1 18,5 8 18.3 ísafjarðardjúp 35 18,5 6 18,9 15 18.7 Ófeigsfjarðarflói 7 17.8 4 18.6 Reykjarfjörður 9 20.3 5 20.6 Húnaflói innanverður 11 18.4 24 18,2 19 18.5 Öxarfjörður 15 18.4 6 19,4 11 20.0 Berufjörður 1 20.3 10 19.2 12 19.0 88 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.