Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1983, Side 44

Ægir - 01.11.1983, Side 44
Halldór Bernódusson: Yandamál vegna aukningar á hringormi í físki 43. fjórðungsþing fiskideildanna á Vestfjörðum varar við því vaxandi vandamáli sem hringormur er orðinn í fiskstofnum hér við land. 1. Hringormur hefur aukist í öllum tegundum fisks og ber að gera allt sem hægt er til þess að stöðva þessa þróun. 2. Skaðvaldurinn, sem er selur, hefur aukist mikið hér við land á undanförnum árum. Lagt er til að selur verði drepinn undir eftirliti og stjórn sjávar- útvegsráðuneytisins og verði til þess ráðnir lög- giltir veiðimenn á svipaðan hátt og nú er með eyð- ingu refa. Greinargerð um þetta vandamál fylgir hér með. I þessari greinargerð er fjallað um fisk, sem veiddur er á Vestfjarðamiðum allt frá norðanverðum Breiða- firði og austur á Strandagrunn. Tölur þær sem hér eru nefndar, eru bygðar á sýna- tökum sem teknar voru vegna útreiknings á staðal- tímum og notaðar við útreikning á bónusgreiðslum frystihúsa. Þar sem sagt er frá fjölda orma er átt við hringorma í kílói af roðlausum flökum. Hringormur í þroski 1973-1983 Það var fljótlega upp úr 1960 að nokkur frystihús fóru að greiða bónus fyrir snyrtingu og pökkun á fiski. Þá sýndu sýni að ormur var í þorski og þurfti að gefa sérstakan tíma fyrir að tína hann úr. Prufur sýndu einnig að nokkur munur var á hringormamagni eftir veiðisvæðum og sérstaka athygli vakti að smáþorskur sem var veiddur á Breiðafirði, úti af ísafjarðardjúpi og fyrir austan Horn hafði fleiri orma í sér en frá öðrum veiðisvæðum. Þannig var t.d. þorskur sem veiddur var á dýpri miðum eða fyrir utan 130 mílur með allt að 0,5 orm og þorskur veiddur á grunnslóð var með 1—1,5 hringorm í kg af flökum. Á árunum milli 1960 og 1970 er sjáanleg aukning á hringormi í þroski og sýndu prufur að hann jókst jafnt og þétt. Þannig var svo komið að 1971-72 sýndu prufur að vertíðarþorskur veiddur af línu- og trollbátum á Vest- fjarðamiðum var kominn með um 2 hringorma og þorskur veiddur af smærri bátum á grynnri miðum með allt að 3-4 orma. Prufur frá 1974 og 1975 sýna að á þessum árum er ekki umtalsverð aukning á hringormi í þorski, en þó sýna prufur að munur er farinn að verða meiri eftir hinum ýmsu veiðisvæðum. Þannig var á þessum árum hægt að fá þorsk til vinnslu með 1-2 ormum, en einstöku daga sýndu prufur að það kom þorskur til vinnslu með um og yfir 6 orma í kílói í flaki. Þegar skoðaðar eru ormaprufur frá þessu ári kemur í ljós að það hefur verið allveruleg aukning á hring- ormi í þorski. Á tímabilinu janúar-maí 1983 var hringormur í togarafiski frá 3,13-3,96 ormar og yfir sumarmánuð- ina júní-september var hann á bilinu 2,48-2,81 ormar og prufur úr þroski veiddum á flottroll á Hala- miðum um miðjan október reyndust vera með 3,2 orma. Þetta þýðir að frá jan.-okt. 1983 eru ormar að meðaltali 2,98 í togaraþorski veiddum á Vestfjarða- miðum allt austur á Strandagrunn. Þegar athugaðar eru prufur af línu og handfærafiski er málið enn alvarlegra, því í janúar til marz s.l. sýna prufur 5,55-7,68 orma að meðaltali, en einstaka prufur eru með allt 12,10 orma og á tímabilinu júní til október 5,61-8,43 orma, en einstaka prufur sýndu allt að 17,60 hringorma. Meðaltal janúar til október 1983 er um 6,70 ormar í kílói af þorski veiddum á línu og handfæri. Ef athugað er beturoktóber 1983, þar sem ormar i línuþorski eru 7, kemur í ljós að vinnan við að tína 604-ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.