Ægir - 01.11.1983, Page 47
Sjómannsævi
Endurminningar Karvels
Ogmundssonar 2. bindi
Útgef.: Örn og Örlygur 1982.
í 1. bindi endurminninga sinna, sem út komu árið
1981, lýsti Karvel Ögmundsson uppvaxtarárum
sínum á Snæfellsnesi, sagði frá ævikjörum fólks í
heimabyggð sinni um aldamótin síðustu, og lýstu at-
vinnuháttum og ýmsu fleiru.
I þessu bindi tekur hann upp þráðinn þar sem frá
var horfið í fyrsta bindi. Hann greinir fyrst lítils-
háttar frá skemmtunum og öðru sem heyrði til lífi
fólks í æsku hans undir Jökli, en færir sig brátt út
á hafið, sem varð starfsvettvangur hans. Hann grein-
ir fyrst frá sjósókn á Snæfellsnesi og síðan frá veru á
þilskipum frá Vestfjörðum, segir frá síldveiðum fyrir
norðan land á sumrum, frá veru sinni á útilegubátum
frá ísafirði, frá vertíðarróðrum á Suðurnesjum, frá
veru sinni í sjómannaskóla á ísafirði og mörgu fleiru.
Karvel Ögmundsson hefur lifað merkilegt tíma-
bil í sögu íslensks sjávarútvegs og verið beinn þátt-
takandi í öllum þeim miklu breytingum, sem orðið
hafa á starfsvettvangi hans. Hann byrjaði sína sjó-
mannsævi á smábátum, náði síðan í skottið á þil-
skipaútgerðinni vestfirsku um það bil sem hún var
að syngja sitt síðasta, stundaði síldveiðar fyrir
Norðurlandi á árunum milli stríða og reri á hinum
frægu útilegubátum ísfirðinga. Eini umtalsverði
þáttur íslenskrar útgerðarsögu á þessum árum, sem
hann virðist ekki hafa tekið þátt í, er togarasjó-
mennska.
Eins og vænta má kann maður, sem lifað hefur
slíkt stórbreytingaskeið, frá mörgu og merkilegu
að segja. Og þar bregst höfundur ekki lesendum.
Frásögn hans er öll einkar lipur og skýr. Hann
kann vel að greina á milli aðalatriða og aukaatriða
og hefur næmt auga fyrir þeim fróðleik, sem máli
skiptir fyrir síðari tíma. Þessir þættir skipa jafnan
öndvegi í frásögninni, sem síðan er krydduð með
skemmtilegum lýsingum á eftirminnilegum atvik-
um og mönnum. Þær rýra þó aldrei heimildagildi
meginefnisins, verða aðeins til fyllingar og
skemmtunar.
Þetta er ævisaga, sem hefur mikið gildi. Hún
bregður skýru ljósi á starfskjör íslenskra sjómanna
á fyrri hluta aldarinnar, lýsir glögglega ólíkum at-
vinnuháttum og mismunandi aðferðum við fisk-
veiðar og sjósókn og gefur lesandanum jafnframt
ágæta mynd af höfundi sínum.
Þriðja bindi þessara æviminninga mun væntan-
legt. Þá fáum við að lesa lýsingu Karvels Ögmunds-
sonar á nýju breytingaskeiði í íslenskum sjávarút-
vegi.
Jón Þ. Þór.
KAUPIÐ
TÍMARITIÐ ÆGI
Fiskifélag fslands
Höfn - Ingólfsstræti
Reykjavík
ÆGIR-607