Ægir - 01.11.1983, Page 72
FISKVERÐ
Spærlingur og kolmunni til bræðslu
Nr. 1911983
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir-
farandi lágmarksverð á spærlingi og kolmunna til bræðslu frá
byrjun vertíðar í ágúst 1983 til 31. janúar 1984:
Hvert tonn..............................kr. 950.00
Verðið er miðað við 8% fituinnihald og 19% fitufrítt þurr-
efni.
Verðið breytiust um kr. 60.00 til hækkunar eða lækkunar
fyrir hvert 1% sem fituinnihald breytist frá viðmiðun og hlut-
fallslega fyrir hvert 0.1%. Fitufrádráttur reiknast þó ekki,
þegar fituinnhald fer niður fyrir 3%. Verðið breytist um kr.
80.00 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem þurr-
efnismagn breytist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert
0.1%.
Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn hvers spærlings- og
kolmunnafarms skal ákveðið af Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins eftir sýnum, sem tekin skulu sameiginlega af fulltrúa
veiðiskips og fulltrúa verksmiðju, eftir nánari fyrirmælum
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Sýni skulu innsigluð af
fulltrúa veiðiskips með innsigli viðkomandi skips.
Verðið er miðað við að seljendur skili spærlingi og kolmunna
á flutningstæki við hlið veiðiskips eða í löndunartæki verk-
smiðju. Ekki er heimilt að nota aðra dælu en þurrdælu eða
blanda vatni eða sjó í hráefni við löndun.
Verðuppbætur:
Með vísun til laga nr. 4 frá 1. febrúar 1980 skal greiða 20%
uppbót á framangreint verð allt veiðitímabilið. Uppbót þessi
greiðist úr verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs og annast
Fiskifélag íslands greiðslurnar til útgerðaraðila eftir reglum,
sem sjávarútvegsráðuneytið setur.
Reykjavík, 13. október 1983.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
VESTUR ÞÝSKIR
GÚMMÍ B JÖRGUN ARBÁT AR
4 - 6 - 8 - 10 og 12 manna.
Viðurkenndir af siglingamálastofnun
Ath. - Hið hagstæða verð
á 4 manna bátunum.
Bátar og búnaður.
Borgartúni 29 sími 25554.