Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1983, Síða 72

Ægir - 01.11.1983, Síða 72
FISKVERÐ Spærlingur og kolmunni til bræðslu Nr. 1911983 Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftir- farandi lágmarksverð á spærlingi og kolmunna til bræðslu frá byrjun vertíðar í ágúst 1983 til 31. janúar 1984: Hvert tonn..............................kr. 950.00 Verðið er miðað við 8% fituinnihald og 19% fitufrítt þurr- efni. Verðið breytiust um kr. 60.00 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1% sem fituinnihald breytist frá viðmiðun og hlut- fallslega fyrir hvert 0.1%. Fitufrádráttur reiknast þó ekki, þegar fituinnhald fer niður fyrir 3%. Verðið breytist um kr. 80.00 til hækkunar eða lækkunar fyrir hvert 1%, sem þurr- efnismagn breytist frá viðmiðun og hlutfallslega fyrir hvert 0.1%. Fituinnihald og fitufrítt þurrefnismagn hvers spærlings- og kolmunnafarms skal ákveðið af Rannsóknastofnun fiskiðn- aðarins eftir sýnum, sem tekin skulu sameiginlega af fulltrúa veiðiskips og fulltrúa verksmiðju, eftir nánari fyrirmælum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Sýni skulu innsigluð af fulltrúa veiðiskips með innsigli viðkomandi skips. Verðið er miðað við að seljendur skili spærlingi og kolmunna á flutningstæki við hlið veiðiskips eða í löndunartæki verk- smiðju. Ekki er heimilt að nota aðra dælu en þurrdælu eða blanda vatni eða sjó í hráefni við löndun. Verðuppbætur: Með vísun til laga nr. 4 frá 1. febrúar 1980 skal greiða 20% uppbót á framangreint verð allt veiðitímabilið. Uppbót þessi greiðist úr verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs og annast Fiskifélag íslands greiðslurnar til útgerðaraðila eftir reglum, sem sjávarútvegsráðuneytið setur. Reykjavík, 13. október 1983. Verðlagsráð sjávarútvegsins. VESTUR ÞÝSKIR GÚMMÍ B JÖRGUN ARBÁT AR 4 - 6 - 8 - 10 og 12 manna. Viðurkenndir af siglingamálastofnun Ath. - Hið hagstæða verð á 4 manna bátunum. Bátar og búnaður. Borgartúni 29 sími 25554.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.