Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1991, Síða 20

Ægir - 01.02.1991, Síða 20
72 ÆGIR 2/91 veginum fóru saman og síðar stjórn fiskveiðanna þar sem tekist var á um mál. í seinna málinu hefði hlutverk framkvæmdavalds- ins átt að koma betur í Ijós við lausn ágreiningsmála, þar sem nauðsyn framkvæmdavalds til að höggva á hnúta er augljós þegar ekki næst samkomulag meðal greina sjávarútvegsins um mál. Það fór þó svo að samkomulag náðist á Fiskiþingum í öllum helstu málum varðandi stjórn fisk- veiða og kom því lítt til kasta ráðu- neytisins. Sérstaklega er áberandi á fyrstu árum kvótakerfisins hve litlu hlutverki sjávarútvegsráðu- neytið gegndi. T.a.m. voru á Fiski- þingi 1981 teknar upp hugmyndir um kvótakerfi að frumkvæði Aust- firðinga og skipuð milliþinganefnd til að kanna hvort skipting afla á skip hentaði til að stjórna veiðum við Island. Meirihluti nefndarinn- ar, fulltrúar útgerðar og vinnslu, hafnaði kvótakerfi alfarið, en full- trúar sjómanna vildu athuga málið betur. Þessi hugmynd var svo þróuð áfram og fulltrúar á Fiski- þingi haustið 1983 komust að samkomulagi um þá útfærslu kvótakerfisins sem gilt hefur síðan í grundvallaratriðum og Alþingi samþykkti síðan lítt breytta um áramótin 1983/1984. Hér er ekki verið að segja að sjávarútvegsráðuneytið sé óþarfur milliliður milli sjávarútvegsins og löggjafarvaldsins. Þörf fyrir fram- kvæmdavald með beint framselt vald frá löggjafanum er og verður til staðar í flestum greinum þjóð- lífsins. En þá kemur að spurning- unni um hve víðtækt valdsvið framkvæmdavaldsins eigi að vera og hve langt framkvæmdavaldið á að ganga í þá átt að útlista og framfylgja lögum sem löggjafinn setur. Aftur er svarið einfalt. Framkvæmdavaldið á að ganga nákvæmlega jafnlangt í fyrirmæla- og eftirlitshlutverki sínu og hag- kvæmast er. Það á alls ekki að ganga svo langt að færa hendurnar ofan á sviðið. Niöurlag Ef of langt er gengið með fyrir- mælum í reglugerðaformi til sjáv- arútvegsins, þar til hver aðgerð er skipulögð af ráðuneytinu mun það hafa lamandi áhrif á hann og gæti komið í veg fyrir eðlilega þróun og útþenslu atvinnugreinarinnar. íslendingar eru eins langt frá því að ná hámarksverðmætum úr sjávarútveginum eins og þeir voru fjarri því um síðustu aldamót að draga núverandi árlegt aflamagn úr sjó. Þessvegna má ekki hamla för og það væri stórslys ef ofstjórn ofan frá yrði til að tefja okkur á langri leið. Bein stýring á öllum þáttum sjávarútvegsins þvert ofan í sögulega þróun hans væri spor aftur á bak. í lokin er rétt að ítreka það sem fyrr var sagt að eftirlitsþáttur hins opinbera með því að reglum sé framfylgt er skýrasta dæmið um handleiðslu ríkisvaldsins. T.a.m. lögreglubílI á ferð um þjóðveginn til að gæta þess að hraðatakmörk séu virt er eðlilegur þáttur í starf- semi framkvæmdavaldsins. Ef hinsvegar er kominn lögreglu- þjónn inn á hvert heimili í land- inu, þá er eftirlit hins opinbera augljóslega komið út í öfgar. Og enn skal endurtekið að gæði upp- lýsinga sem safnað er fara ekki eftir fjölda aðila sem upplýsing- unum safna og þaðan af síður tækjum sem þeir hafa yfir að ráða, heldur eftir vilja þeirra sem upp- lýsingarnar hafa til að láta þær af hendi. Upplýsingasöfnun í ís- lenskum sjávarútvegi og upplýs- ingastreymi er til fyrirmyndar og sjálfsagt að halda áfram að bæta það, en valdstjórn er ekki leiðin. Ef þröngvað er á upplýsingaskyldu með valdi, án samráðs, leiðir það til óvandaðri upplýsinga. Þekkt eru dæmi frá Evrópubandalaginu um hve erfitt er að treysta aflatöl- um. Nú á haustdögum kom fram í erlendu tímariti um sjávarút- vegsmál að heppilegast sé að beita gervitunglum til eftirlits með fisk- veiðum í landhelgi Evrópubanda- lagsins. Hér er um að ræða skýrt dæmi um ofurtrú á tækni til eftir- lits. Hvernig halda menn að til tækist að halda uppi eftirliti úr gervihnetti með beitingu ólöglegra veiðarfæra, gera greinarmun á hvort fiskimennirnir séu að veiða

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.