Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1991, Síða 30

Ægir - 01.02.1991, Síða 30
82 ÆGIR 2/91 Björn Guömundsson: Dauðastirðnun fiska Dauðastirðnun (rigor mortis) er ástand sem vöðvar fara í þegar orkuforði þeirra tæmist. Við dauða raskast orkujafnvægi líkam- ans. Einstakir vefir „lifa" þó áfram en ganga á orkuforða sinn. Vöðvar læsast þá í fastri stöðu. í dauða- stirðnun hefst niðurbrot vefsins og að lokum verður vöðvinn mjúkur og sveigjanlegur á ný. Fyrst eftir dauða (blóðgun) eru vöðvar dýra mjúkir og sveiganleg- ir. En fljótlega dragast þeir saman og verða stinnir. Það ástand er dauðastirðnun (rigor mortis). Eftir nokkurn tíma meyrna vöðvarnir og verða mjúkir á ný. Þetta ferli skiptist því í 3 skeið: fyrir stirðnun, stirðnaður og eftir stirðnun. Hraði þessara breytinga er háður hitastigi fyrst og fremst. Næringarástand fisksins hefur einnig áhrif. Gott næringarástand lengir þann tíma sem líður áður en stirðnun hefst. Mikil hreyfing fyrir dauða, þ.e. skertur orkuforði, styttir þennan tíma. Fiskvöðvar innihalda kolvetni (glycogen) sem er orkugjafi fyrir starfsemi þeirra. Því meira glyc- ogen í vöðvanum við dauða, þess lengri tíma stendur stirðnunar- ferlið yfir. Horaður fiskur, t.d. nýhrygndur, eða fiskur sem hefur barist mikið um við veiði, hefur lítinn orkuforða og þá gengur stirðnun yfir á skömmum tíma. Dauðastirðnun hefur afgerandi áhrif á gæði og nýtingu fisks. Frysting* fisks fyrir stirðnun eða meðan á stirðnun stendur, eykur los í holdi, vökvatap og hefur áhrif á nýtingu í vinnslu. Ferli dauða- stirðnunar stöðvast við frystingu, en heldur síðan áfram við þiðnun. Verst verður nýting þegar fiskur fer í hausun, slægingu og flökun meðan dauðastirðnun stendur yfir. Los og vökvatap Dauðastirðnun hefur mikil áhrif á gæði freðfisks þ.e. los, vökvatap (drip) og seigju. Los er þegar vöðvaflögur fiskholds losna í sundur. Los getur komið til þegar stirðnun á sér stað við hátt hitastig, sérstaklega ef orkuforði vöðvanna er mikill. Þá verður samdráttur vöðvans svo mikill að bindivefur- inn sem límir saman flögurnar brestur. Mikill vöðvasamdráttur sem verður þegar stirðnun á sér stað við hátt hitastig veldur því líka að hold tapar meiri vökva við þiðnun og matreiðslu og fiskurinn verður seigur undir tönn. Los getur einnig orðið við flökun þegar flökunarvél reynir að rétta úr bognum fiski sem er stirður. Við það slitna vöðvarnir í sundur. Þegar fiskur er flakaður fyrir dauðastirðnun þá stirðnar flakið og herpist meira saman vegna vöðvasamdráttar ef hitastig er hátt og fiskurinn er líklegur til að verða seigur undir tönn. Auk þess getur flakið orðið gráleitt sem verður vegna Ijósbrotsáhrifa. Samdráttur og rýrnun vegna dauðastirðnunar verður minnst í heilum fiski (v.s. flökum) vegna þess að vöðvarnir eru festir við beinagrindina. Fiskur í blóðgunarkari. aras j ; 1: nm ^ ~ ' 1 1 Pl i inií i

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.