Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Blaðsíða 7
rniAitii - _
löi.ik i:m\<.\
1. HEFTI 33. ÁRGANGUR ÁGÚST 1983
VERÐBÓLGA OG LAGAREGLUR
Sú mikla verðbólga, sem nú ríkir á islandi og hefur raunar ríkt um nokkurt
árabil, hefur mjög veruleg áhrif á fjárhagsmuni manna í landinu. Hugtakið verð-
bólga er í sjálfu sér fremur óheppilegt og er til þess fallið að valda misskiln-
ingi um eðli málsins, því að raunin er ekki sú, að verð hluta hækki vegna verð-
bólgunnar, heldur er það gjaldmiðillinn sem lækkar í verði. Þannig þarf fleiri
einingar gjaldmiðilsins (krónur) til að greiða verð hluta nú, heldur en þurfti
t.d. fyrir einu ári. Hluturinn er hins vegar, ef ekkert annað kemur til á sama
(raun) verði.
Yfirgnæfandi meirihluta allra dómsmála fjallar um fjárhagsmuni, sem verða
fyrir áhrifum af verðbólgunni. Á þetta einkum við um kröfur manna á hendur
öðrum um peningagreiðslur. Er augljóst, að við rýrnun á verðgildi krónunnar,
rýrnar krafan að raungildi, þegar hún er mæld í þessum sömu krónum.
islenzkir lögfræðingar hafa verið allt of seinir og allt of tregir til að fást við
þau vandamál, sem þetta ástand hefur valdið. Þetta á bæði við um lögmenn,
dómara og þá lögfræðinga, sem sinna rannsóknum og fræðilegum skrifum um
lögfræðileg efni. Stundum virðist manni jafnvel, að lögfræðingum ,,leiðist“
verðbólgan. Hún sé svo flókin og ill viðureignar miðað við ,,hefðbundinn“ hugs-
unarhátt lögfræðinga að betra sé að leyfa ranglæti verðbólgunnar að ráða,
heldur en að taka á vandamálunum. Þetta eru stór orð, en þau eru því miður
of sönn.
Tökum dæmi. Vegna verðbólgunnar, hafa vextir á íslandi verið ákveðnir
miklu hærri en í öðrum löndum, þar sem verðbólga er minni. Vöxtunum er
þannig ætlað að vera í raun verðbætur á kröfur vegna verðrýrnunar gjaldmið-
ilsins. Þrátt fyrir þetta hefur meiri hluti Hæstaréttar dæmt íslenzka dráttarvexti
á kröfur í erlendri mynt, sem rýrna óverulega í verðbólgu miðað við íslenzka
mynt. Hér hafa kröfuhafar fengið ávöxtun, sem ég er sannfærður um að þekkist
hvergi í heiminum.
Annað dæmi eru þær aðferðir, sem beitt er á íslandi við að reikna út tekju-
tap vegna örorku í slysamálum. Við þann útreikning þarf að átta sig á, hvernig
unnt sé að ávaxta í framtíðinni þær örorkubætur, sem tjónþolar fá greiddar
1