Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Blaðsíða 35

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Blaðsíða 35
eða ófullkominna upplýsinga í fylgibréfi og vegna skemmda, er hljót- ast af lélegum eða ófullnægjandi umbúðum vörusendingar. Ennfrem- ur eru talin ýmis ákvæði LSL um réttarstöðu viðtakanda vöru, svo sem skyldu hans til að vitja vöru á ákvörðunarstað, greiða flutnings- gjald o.fh, og skyldu hans til að hefjast handa, ef hann vill bera fyrir sig að vara hafi skemmst eða glatast í flutningi. Loks er í 5. kafla minnst á ákvæði LSL um fyrningu o.fl. 1 6. kafla er, eins og fyrr segir, fjallað um bótaábyrgð flytjanda. Eftir III. kafla LSL getur hann bæði orðið ábyrgur fyrir tjóni, er hlýst af óeðlilegum drætti á að flytja vöruna og tjóni, sem hlýst af því að varan skemmist, eyðileggst eða glatast. Bótaábyrgð vegna ein- hverra af síðarnefndum atvikum (,,farmtjóns“) er hér nefnd umönn- unarábyrgð. Fyrir setningu LSL voru bótareglur umferðarlaga nr. 40/1968 einu settu lagaákvæðin, sem tóku til tjóns af flutningi farms með bifreið- um. Reglur umferðarlaga komu að mjög takmörkuðu haldi við úrlausn ágreinings aðila farmsamnings út af slíku tjóni. Varð þá að leysa ágreininginn eftir ólögfestum réttarreglum. Með dómi í Hrd. 1981, 35 er því slegið föstu, að flytjandi beri bótaábyrgð vegna varnings, sem glatast í landflutningi af ókunnum orsökum. Hér er, án stoðar í settri lagaheimild, felld á flytjanda bótaskylda, sem er víðtækari en ábyrgð eftir almennum bótareglum, er gera sök að skilyrði ábyrgð- ar. Með LSL var aftur á móti lögfest víðtæk bótaregla um umönnunar- ábyrgð (og ábyrgð vegna óeðlilegs dráttar). Eftir 16., sbr. 17. gr. LSL er flytjandi bótaskyldur vegna farmtjóns og óeðlilegs dráttar í flutningi, nema leitt sé í ljós, að tjónið verði rakið til einhverra ástæðna, sem eru nánar tilteknar í 17. gr., svo sem vanrækslu eða mistaka sendanda, viðtakanda eða manna, sem þeir bera ábyrgð á, skemmda vegna sérstakra eiginleika vörunnar eða óviðráðanlegra orsaka (force majeure). Ábyrgð flytjanda er samkvæmt LSL víð- tækari en eftir sigll. og loftfL, en líklegt er að í reynd verði þau tilfelli tiltölulega fá, sem bótaskyld eru eftir LSL en ekki eftir sakarlíkinda- reglu eins og þeirri, sem sigll. og loftfl. hafa að geyma (6.1). Lengi hefur tíðkast, að flytjendur farms, þ.á.m. flutningamiðstöðv- ar, sem annast vöruflutning með bifreiðum, geri fyrirvara, er leysa flytjendur að meira eða minna leyti undan skaðabótaábyrgð. Slíkur fyrirvari er almennt gildur, ef viðsemjandi flytjanda hefur samþykkt hann berum orðum eða á annan hátt, enda brjóti hann ekki í bága við ákvæði settra laga. Dómstólar geta samkvæmt óskráðum meginregl- um laga metið fyrirvara um undanþágu frá ábyrgð ógildan, ef sér- 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.