Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Blaðsíða 34

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1983, Blaðsíða 34
samninga um flutning farms á sjó og í lofti hafa verið í íslenskum lögum um árabil. Hins vegar varð það ekki fyrr en á síðastliðnu ári, að á Islandi voru sett lög um samninga um vöruflutninga á landi. Við- fangsefnið hér er kynning á LSL nr. 24/1982. Fyrirmynd þeirra eru norræn lög, sem að nokkru eru reist á ákvæðum milliríkjasamnings um flutning á vörum eftir vegum milli landa, CMR-samningsins frá 1956 (1. kafli). 1 2. kafla segir lauslega frá helstu hugtökum LSL, en þeim svipar til þeirra, sem tíðkast í öðrum íslenskum lögum um flutningssamn- inga. Hugtökin flytjandi, sendandi og móttakandi eru skilgreind stutt- lega. í 8. kafla segir frá efni I. kafla LSL, en meginefni hans er gildis- svið laganna. Af ákvæðum LSL og greinargerð með frv. til laganna kemur fram, að þau gilda um vöruflutninga innanlands með bifreiðum, ef flytjandi vörunnar annast „að jafnaði flutning fyrir fleiri en einn aðila í sömu ferð og gegn gjaldi“. Segir í grg., að lögunum sé ekki ætlað að gilda um vörusendingar, sem hafa upphafs- og ákvörðunar- stað innan sama bæjarfélags eða kaupstaðar. Reglur íslenskra og erlendra laga um flutningssamninga eru í ýms- um mikilvægum atriðum ófrávíkjanlegar. Einkum lúta hin ófrávíkjan- legu ákvæði að því að skerða rétt flytjanda til þess að takmarka bóta- ábyrgð sína gagnvart eigendum vöru, sem hann flytur. Er markmið slíkra ákvæða flestum lögfræðingum kunnugt. 1 LSL er hins vegar ekkert ákvæði, sem girðir fyrir það, að aðilar semji um frávik frá reglum laganna. Ná lögin varla tilgangi sínum, ef flytjandi getur að öllu leyti undanþegið sig bótaábyrgð með skildaga í fylgibréfi eða á annan hátt (4. kafli). Stutt yfirlit yfir meginefni LSL, annað en efni I. kafla þeirra, er í 5. kafla greinar þessarar. Segir þar fyrst frá reglum LSL um útgáfu fylgibréfs og hvert efni fylgibréfs skuli vera. Þá er greint frá ákvæð- um LSL um réttaráhrif þess, að eigi er farið eftir fyrirmælum um útgáfu fylgibréfs, ákvæðum um skyldu flytjanda til að kanna rétt- mæti tilgreiningar í fylgibréfi og skyldur sendanda, er afhendir hættu- lega vöru til flutnings. Ákvæði LSL um ráðstöfunarrétt sendanda yfir vörunni eru rakin. Sendandi getur ráðstafað vörunni meðan á flutn- ingi stendur, en þegar hún er komin á ákvörðunarstað getur móttak- andi krafist hennar að uppfylltum nánar tilgi’eindum skilyrðum. Síðan er greint frá fleiri reglum, svo sem ákvæðunum um ábyrgð flytjanda, en þau eru rakin frekar í 6. kafla. Þar næst eru í 5. kafla rakin m.a. ákvæði LSL um bótaskyldu sendanda gagnvart flytjanda vegna rangra 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.