Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Blaðsíða 9

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Blaðsíða 9
JÓN S. ÓLAFSSON Jón Sigurður Ólafsson, lögfræðingur og skrif- stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu, andaðist í Reykjavík 5. ágúst 1984. Andlát hans bar brátt að og óvænt, enda þótt þeim sem best þekktu til væri Ijóst, að hann hafði ekki upp á síð- kastiö gengið alls kostar heill til skógar. Jón fæddist 7. október 1919 á Valshamri í Geiradal. Foreldrar hans voru Ólafur E. Þórðar- son, bóndi þar en síðar í Króksfjarðarnesi, og eiginkona hans Bjarney Ólafsdóttir. Eftir að hafa notið venjulegrar barnafræðslu í heimasveit sinni hélt Jón til Reykjavíkur og innritaðist í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga haustið 1934 og var í þeim skóla í 3 vetur. Haustið 1937 settist hann í 4. bekk Mennta- skólans í Reykjavlk og lauk þaðan stúdents- prófi vorið 1940. Þá lá leiðin í lagadeild Háskóla íslands og þaðan lauk hann kandídatsprófi vorið 1946. Jón starfaði í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu frá byrjun júlí til 1. nóvember 1946, en gerðist síðan fulltrúi hjá sýslumanninum í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, sem jafnframt var bæjarfógeti í Hafnarfirði. Hann varð fulltrúi f félags- málaráðuneytinu í febrúar 1947, var skipaður deildarstjóri þar í janúar 1970 og skrifstofustjóri ráðuneytisins I júll 1973 og gegndi því embætti til æviloka. Leiðir okkar Jóns lágu ekki saman, hvorki í Menntaskólanum f Reykjavík né lagadeild Háskóla íslands. Það var ekki fyrr en í apríl 1948, er ég réðist sem fulltrúi í félagsmálaráðuneytið, að fundum okkar bar fyrst saman. En síðan, eða ( rúm 36 ár, vorum við nánir samstarfsmenn og vinir og minnist ég þess ekki, að okkur hafi nokkurn tímann orðið sundurorða, enda þótt oft værum við ekki sammála eins og gengur. Jón gegndi öllum störfum sfnum í ráðuneytinu af einstakri samviskusemi, enda voru reglusemi og vandvirkni í starfi honum meðfædd. Hann var ekki mikill félagshyggjumaður í venju- legri merkingu þess orðs. Þó var hann félagi f Frímúrarareglunni um langt árabil. En Jón var annað, sem áreiðanlega skipti miklu meira máli. Hann var einstakur fjölskyldufaðir, og raunar miklu meira, því að hann var einnig ein- stakur vinur og félagi barna sinna. Jón unni móður jörð og í faðmi hennar, sölum fjalla og í óbyggðum kunni hann best við sig. Hann var mikill útilífsmaður. Hann byggði sumarbústað fyrir um tuttugu árum við Þingvallavatn og þar undi hann og fjölskylda hans sér vel. Þegar Jón stóð í því að byggja sumarbústað sinn, kom vel f Ijós, að hann var frábær smiður, hagsýnn og úrræðagóður. Hann vann mikið sjálf- ur að smíði þessa sumarhúss síns og bar þar allt vott um snyrtimennsku hans og smekkvísi. Þau munu ekki mörg fjöllin í nágrenni Þingvalla sem Jón hafði ekki gengið á, og það oftar en einu sinni, og var þá oftast lagt af stað löngu fyrir venju- 183
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.