Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Blaðsíða 52

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Blaðsíða 52
Félagið hefur staðið fyrir allmörgum fræðafundum, sem almennt hafa verið vel sóttir. Erindi, sem þar hafa verið flutt, hafa, mörg hver, síðar birst [ tíma- riti félagsins. Félagið gefur út tímaritið NjörS og koma út fjögur hefti á ári. Árlega birt- ist einnig Félagsbréf með fréttum af starfsemi félagsins. Af fræðilegum greinum, sem birst hafa í Nirði, má nefna: Páll Sigurðsson: Nýmæli í björgunarrétti. Sami: Hvenær koma ný sjómannalög? Benedikt Sigurjónsson: Spjall um skipavátryggingu. Jónas Haraldsson: Ákvæði 18. gr. sjómannalaga um slys og veikindi skipverja. Valgarð Briem: Um P & I tryggingar. Páll Sigurðsson: Hugleiðingar um nýskipan lagareglna um ábyrgð út- gerðarmanns og takmörkun hennar. Hans Jakob Bull: Petroleumsvirksomhet og petroleumstransport. Over- sikt over de rettslige hovedsporsmál. Jón H. Magnússon: Sjópróf. Hrafn Bragason: Gerðardómar í sjóréttarmálum. Agnar Erlingsson: Flokkunarfélög. Hjálmar R. Bárðarson: Alþjóðasiglingamálastofnunin, I.M.O. Á næstunni munu m.a. birtast greinar um „stöðuumboö skipstjóra" eftir Einar Örn Thorlacius og um ,,sjóveð“ eftir Guðrúnu Ástu Sigurðardóttur. Stjórn félagsins hefur komið á sérstöku sambandi við Nordisk Institutt for Sjorett í Osló, sem er ein hin helsta rannsóknar- og fræðistofnun heims á sviði sjóréttar. í boði félagsins hafa nú þegar þrír fræðimenn frá þeirri stofn- un haldið fyrirlestra í Reykjavík, en þeir eru: prófessor Erling Selvig (forstöðu- maður stofnunarinnar), Hans Jakob Bull (forstöðumaður olíuréttardeildar stofnunarinnar) og prófessor Sjur Brækhus (fyrrverandi forstöðumaður). Pró- fessor Thor Falkanger í Osló hefur þegið boð félagsins um að halda hér fyrirlestur haustið 1985. Núverandi stjórn félagsins skipa: Dr. Páll Sigurðsson, dósent, (formaður); Jón H. Magnússon, lögfræðingur; Jónas Haraldsson, skrifstofustjóri; Viðar Már Matthíasson, hdl.; Benedikt Blöndal, hrl.; Benedikt Sigurjónsson, fyrrv. hæstaréttardómari; Einar Hermannsson, skipaverkfræðingur. í varastjórn voru kosnir þeir Gunnar Felixson, aðstoðarforstjóri, og Bjarni Kr. Bjarnason, borgardómari. Páll Sigurðsson FRÁ FÉLAGI ÁHUGAMANNA UM RÉTTARSÖGU Félagið var stofnað haustið 1982 og er hlutverk þess að efla réttarsögu (íslenska og almenna) sem fræðigrein. Samkvæmt lögum félagsins er því m.a. ætlað að ná tilgangi sínum með því: 1) „Að örva og styrkja rannsóknir í réttarsögu, t.d. með því að knýja á um fjárveitingar [ því augnamiði, með því að auðvelda útgáfu íslenskra 226
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.