Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Síða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Síða 25
Jónatan Þórmundsson prófessor: RÉTTARSTAÐA SAKBORNINGS I. HUGTAKIÐ SAKBORNINGUR. Sakborningur (sökunautur) er hver sá, sem hafður er fyrir sökum eða grunaður um refsivert brot, allt frá upphafi lög- reglurannsóknar til dóms. Oft er sakborn- ingur nefndur kærði (kærður) fram að málshöfðun, en ákærði (ákærður) eftir málshöfðun, sbr. 120. gr. oml., sbr. 22. gr. 1. 107/1976. Enginn greinarmunur er gerður á því í íslenzkum lögum, hvort maður er formlega hafður fyrir sökum (sigtet) eða aðeins grunaður (mistænkt). Sakborningur verður maður ekki ætíð við formlega athöfn, og er því stundum erfitt að marka upphafstíma þessa réttarástands. Eigi sér stað handtaka, gæzluvarðhald, leit eða aðrar þvingunarráðstafanir vegna afbrots, má yfirleitt miða við þær. Sama máli gegnir um rannsóknarfyrirmæli ákæruvalds gegn nafngreindum manni. Að öðrum kosti á lögreglu- maður, strax og málið er orðið nógu skýrt, að gera skýrslugjafa grein fyrir, hvort hann er spurður sem sökunautur eða kvaddur vitnisburðar, sbr. 1. mgr. 40. gr. með hliðsjón af 2. mgr. 77. gr. oml. Ef skýrslu- gjafi fyrir þann tíma er eða má vera í vafa um réttarfarsstöðu sína, t.d. vegna þess að hann er bókaður mætti, en ekki er brýnd fyrir hon- um vitnaskyldan, kann sá vafi að verða skýrður honum í hag. Verður hann þá ekki sakfelldur fyrir rangar skýrslur (147. gr. hgl.), sbr. 1. mgr. 143. gr. hgl. og Hrd. XXXII, bls. 538; LII, bls. 430 (466-467). Jafnvel þótt maður hafi með réttu verið kvaddur vitnisburðar, verður hann refsilaus af röngum skýrslum, ef hann hefur talið sig hafðan fyrir sökum eða haft réttmæta ástæðu til að ætla, að réttar upplýs- 199

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.