Tímarit lögfræðinga - 01.12.1984, Page 54
ingur; Dr. Ingi Sigurðsson, lektor, og Steingrímur Gautur Kristjánsson, borgar-
dómari. í varastjórn eru séra Bjarni Sigurðsson, dósent, og dr. Björn Sigfús-
son, fyrrverandi háskólabókavörður.
Páll Sigurðsson
FRÁ DÓMARAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalfundur Dómarafélags Reykjavíkur var haldinn í húsakynnum BHM í
Reykjavík hinn 23. október 1984. í veikindaforföllum formanns félagsins,
Steingrims Gauts Kristjánssonar, setti varaformaður, Friðgeir Björnsson,
fundinn. Hann bað Garðar Gíslason, borgardómara, að fara með fundarstjórn
og Eggert Óskarsson, borgardómara, að gegna störfum fundarritara.
Varaformaður, Friðgeir Björnsson, flutti skýrslu stjórnar um starf félagsins
og félagsstjórnar á liðnu starfsári. Einn félagsmanna hafði látist, Emil Ágústs-
son, borgardómari. Fundarmenn minntust hans með því að rísa úr sætum.
Ólöf Pétursdóttir, sem á starfsárinu hafði verið skipuð héraðsdómari í Kópa-
vogi, hafði bæst í hóp félagsmanna og var hún boðin velkomin í félagið.
Varaformaður greindi frá helstu málum, sem stjórn félagsins hafði fengist
við. Einkum væri þar að nefna kjaramálin og þá lagaþreytingu, er varð á
síðastliðnu vori þess efnis, að launakjör dómara skyldu ákveðin af Kjara-
dómi. Með þeirri breytingu væri komið í höfn langtímabaráttumál félagsins,
en eftir ætti að koma í Ijós, hvort sú breyting hefði í för með sér nokkrar
kjarabætur. Þetta hefði þó verið eitt helsta baráttumál félagsins á síðustu
árum. Því væri það miður, að greind breyting hefði ekki náð til vararíkis-
saksóknara og saksóknara, sem þannig hefðu tveir einir allra félagsmanna
Dómarafélags Reykjavíkur verið skildir eftir.
Varaformaður skýrði frá störfum stjórnarskrárnefndar Dómarafélags islands
og kvað þá nefnd mundu leggja fram greinargerð sína á framhaldsaðalfundi
Dómarafélagsins. Þá fjallaði varaformaður um störf réttarfarsnefndar, sem
hann á sæti í, gerði grein fyrir því, sem þar væri unnið að og væri framundan
og gat m.a. frumvarps um meðferð minni háttar mála.
í lok skýrslu sinnar ræddi varaformaður nokkuð hugmyndir, er uppi hefðu
verið um breytingu á nafni félagsins. Tillögum þar að lútandi hefði á síðasta
aðalfundi verið frestað til þessa fundar, en sannast sagna hefði á starfsárinu
lítið verið rætt um slíkar tillögur. Menn virtust því almennt hallast að þvi að
halda nafni félagsins óbreyttu, þótt í félaginu væru nú, auk allra dómara við
dómaraemþættin í Reykjavík, skipaðir héraðsdómarar við embætti sýslu-
manna og bæjarfógeta svo og vararíkissaksóknari og saksóknari.
Gjaldkeri félagsins, Jónas Gústavsson, gerði grein fyrir reikningum þess.
Reikningar félagsins voru samþykktir án athugasemda.
Að loknum umræðum um skýrslu stjórnar og félagsmál almennt fór fram
stjórnarkjör fyrir næsta starfsár. Formaður félagsins var kosinn Friðgeir
Björnsson, borgardómari. Aðrir í aðalstjórn voru kosin: Bragi Steinarsson,
vararíkissaksóknari, Jónas Gústavsson, borgarfógeti, Jón Erlendsson, saka-
dómari, og Ólöf Pétursdóttir, héraðsdómari. [ varastjórn voru kosnir: Stein-
grlmur Gautur Kristjánsson, borgardómari, og Már Pétursson, héraðsdómari.
228