Tímarit lögfræðinga - 01.11.1986, Blaðsíða 61
Frá
Lögmaimafélagi
íslands
UM STARFSEM! LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
STARFSÁRIÐ 1985-1986
Aðalfundur L.M.F.Í. 1986 var haldinn 21. mars s.l. Formaður, Jón Steinar
Gunnlaugsson hrl., minntist í upphafi eins félagsmanns, er látist hafði á starfs-
árinu, þ.e. Jóns Arasonar hdl. Risu fundarmenn úr sætum til að votta hinum
látna félaga virðingu sína.
Á starfsárinu voru haldnir félagsfundir sem hér segir: Hinn 4. október var
haldinn hádegisverðarfundur í Þingholti. Arnljótur Björnsson, prófessor, ræddi
um bótaábyrgð lögmanna og vátryggingar f tengslum við hana. 14. nóvember
var haldinn félagsfundur í húsakynnum félagsins að Álftamýri 9. Garðar Valdi-
marsson, þáverandi skattrannsóknarstjóri, flutti erindi um tekjuskráningu á
lögmannsstofum og svaraði fyrirspurnum. Hinn 22. nóvember var haldinn há-
degisverðarfundur í Þingholti. Jón Örn Marínósson, lögfræðingur og tónlistar-
stjóri Ríkisútvarpsins, flutti pistil og kom víða við. Ræddi hann m.a. um stöðu
lögfræðingsins f þjóðfélaginu og starfsemi Ríkisútvarpsins með hliðsjón af
nýjum útvarpslögum. 20. desember var hádegisverðarfundur f Þingholti. Magn-
ús Thoroddsen, hæstaréttardómari, ræddi þar um störf réttarfarsnefndar. Enn
var haldinn hádegisverðarfundur í Þingholti 31. janúar. Ingólfur Hjartarson
hdl., sem verið hefur við framhaldsnám í Englandi, hélt erindi um breska lög-
mannakerfið.
Þá er ógetið málþings L.M.F.Í. og Dómarafélags íslands 1. júní að Hótel
Valhöll á Þingvöllum um málsforræði og kröfur í dómsmálum. Umræðuefni
var skipt í 3 málaflokka:
1. Forræði aðila á dómkröfum og málsástæðum.
2. Forræði aðila á málsmeðferð.
3. Dómkröfur og breytingar á þeim, þ.á m. við áfrýjun máls.
Einn framsögumaður var frá hvoru félagi í hverjum málaflokki.
Félaginu bárust 22 erindi, þar sem stjórnin var beðin umsagnar um leyfis-
umsóknir til málflutnings fyrir héraðsdómi. Stjórnin mælti með 11 umsókn-
um og ákvað að mæla ekki gegn 11 umsóknum, en þar var um að ræða lög-
fræðinga í opinberu starfi, sem ber að afhenda dómsmálaráðuneytinu mál-
flutningsleyfi sín meðan svo er ástatt.
Nýir félagar Lögmannafélagsins frá því á aðalfundi 1985 voru 17, þar af 6
sem leyst hafa til sín eldri réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi og hafið
lögmannsstörf. Á sama tíma fengu 6 héraðsdómslögmenn réttindi til mál-
flutnings fyrir Hæstarétti. Af félagaskrá féllu 6.
207