Tímarit lögfræðinga - 01.11.1986, Blaðsíða 64
Fyrir nokkrum árum var á vegum félagsins útbúinn sérstakur listi yfir lög-
menn, sem vildu taka að sér opinber mál og sinna bakvöktum hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins (RLR). Voru upphaflega um 25 lögmenn á þessum lista.
Hins vegar brá svo við, að margir heltust fljótlega úr lestinni og fáir nýir komu
í staðinn. Var svo komið haustið 1985, að einungis 5-6 lögmenn voru eftir á
listanum og reyndist því ekki unnt að sinna bakvöktum að neinu marki. Sjálf-
sagt var helsta ástæða þessa áhugaleysis lögmanna sú, að þóknun fyrir störf
af þessu tagi hefur iðulega verið of lág. M.a. af þessu tilefni áttu formaður og
varaformaður fund með yfirsakadómara, þar sem sjónarmiðum lögmanna
var komið á framfæri. í framhaldi af þessum viðræðum var ákveðið að gera
tilraun til að koma bakvaktaþjónustunni í lag. Hefur verið útþúinn nýr iisti
yfir lögmenn, sem sinna þakvöktum hjá RLR, eina viku í senn. Eru tæplega
30 lögmenn á þessum lista nú, þannig að hver lögmaður ætti ekki að þurfa
að vera nema 2 vikur á bakvakt á ári.
Á starfsárinu var kannað hjá tryggingarfélögum, hvort boðið væri upp á
ábyrgðartryggingar fyrir starfandi lögmenn og, ef svo væri, með hvaða skil-
málum og kjörum. Aðeins eitt félag hefur enn sem komið er látið útbúa skil-
mála fyrir ábyrgðartryggingu af þessu tagi, en 2 félög til viðbótar virtust vilja
taka að sér slíka tryggingu, ef eftir því væri leitað. önnur félög bjóða ekki
upp á ábyrgðartryggingar fyrir lögmenn, en sum þeirra eru að láta athuga
möguleika á slíku hjá erlendum endurtryggjendum. Hjá þeim félögum, þar
sem nú er hægt að fá ábyrgðartryggingar, myndi iðgjald nema um 20-30 þús-
und kr. á ári miðað við vátryggingarfjárhæð 3-4 milljónir króna með einhverri
sjálfsábyrgð. Svo virðist sem hóptrygging myndi ekki leiða til lækkunar ið-
gjalds að neinu marki. Kom fram, að við ákvörðun iðgjalds hverju sinni yrði
reynt að afla upplýsinga um rekstur viðkomandi lögmanns og iðgjald síðan
ákveðið m.a. með hliðsjón af hugsanlegri áhættu af rekstrinum. Meðal lög-
manna með sams konar tryggingu gæti iðgjald því orðið nokkuð mismunandi
og rekstur sumra lögmanna talinn vera áhættusamari en annarra. Niðurstöð-
ur þessarar athugunar hafa verið kynntar lögmönnum og þeim bent á þá
möguleika, sem til staðar eru á þessu sviði.
Fastanefndir félagsins, þ.e. kjaranefnd, laganefnd og gjaldskrárnefnd, störf-
uðu reglulega eins og áður. Þá kom stiórn námssjóðs nokkrum sinnum saman
til að sinna umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Hér að framan hefur í stórum dráttum verið gerð grein fyrir starfsemi félags-
ins á siðasta starfsári. Þar að auki hafði félagið afskipti af ýmsum málaflokk-
um, sem ekki er talin ástæða til að rekja á þessum vettvangi. Þá bárust félag-
inu fjölmörg erindi til ýmiss konar fyrirgreiðslu bæði frá innlendum og er-
lendum aðilum.
Úr stjórn gengu Jón Steinar Gunnnlaugsson hrl., Páll A. Pálsson hrl. og
Eiríkur Tómasson hrl. Formaður var kjörinn Sveinn Snorrason hrl. Auk for-
manns eiga nú sæti f stjórninni Hákon Árnason hrl., varaformaður, Gestur
Jónsson hrl., gjaldkeri, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl., ritari, og Björgvin
Þorsteinsson hrl., meðstjórnandi. Framkvæmdastjóri er Hafþór Ingi Jóns-
son hdl.
Hafþór Ingi Jónsson
210