Tímarit lögfræðinga - 01.12.1991, Blaðsíða 24
43. gr. víxillaga nr. 93/1933.2 Greiði samþykkjandi hins vegar ekki víxilinn, af
einhverri ástæðu, hafa aðrir víxilskuldarar brýna hagsmuni af því að fá að vita að
víxilskylda þeirra sé orðin virk, svo að þeir geti gætt hagsmuna sinna. Samkvæmt
50. gr. vxl. mega víxilskuldarar greiða innlausnarféð áður en innheimtuaðgerðir
eru hafnar á hendur þeim3 og komast þannig hjá því að frekari dráttarvextir falli
á kröfuna svo og innheimtukostnaður. Eftir að hafa innleyst víxilinn getur
viðkomandi krafist innlausnarfjárhæðarinnar af þeim víxilskuldurum er ábyrgð
bera gagnvart honum, sbr. 3. mgr. 47. gr. og49. gr. vxl. Oft skiptir miklu að geta
farið sem fyrst í endurkröfumál, ekki síst ef fjárhagsstaða þeirra, sem endur-
kröfu verður beint að, fer versnandi.
Af framansögðu er ljóst að í þeim tilvikum þegar samþykkjandi greiðir ekki
víxil, hafa aðrir víxilskuldarar verulega hagsmuni af því að fá vitneskju um
greiðslufallið. Vaknar því sú spurning hvort skylda hvílir á víxilskuldurum til að
fylgjast með greiðslu víxils eða hvort víxilhafa beri að tilkynna víxilskuldurum
um greiðslufall víxils. í 45. gr. vxl. er þessari spurningu svarað. Þar kemurxÆýrí
fram að á víxilhafa hvílir tilkynningaskylda.
Akvæði víxillaga og 17. kafla eml. veita víxilhafa mjög sterka stöðu gagnvart
víxilskuldurunum. Reglurnar um tilkynningaskylduna í 45. gr. vxl. eru hins
vegar meðal þeirra reglna sem ætlað er að tryggja stöðu víxilskuldara með þeim
hætti að veita þeim færi á að takmarka tjón sitt sem mest. Þar sem verulegur
brestur virðist vera á því að reglum þeim sem fram koma í 45. gr. vxl. sé fylgt, er
fróðlegt að athuga hvað felst í tilkynningareglunum og hvaða réttaráhrif
vanræksla á tilkynningaskyldunni kann að hafa í för með sér.
2. í HVAÐA TILVIKUM SKAL TILKYNNA?
11. mgr. 45. gr. vxl. kemur fram að skylt er að tilkynna víxilskuldurum í fyrsta
lagi þegar víxill hefur ekki verið samþykktur af greiðanda og í öðru lagi þar sem
greiðslufall hefur orðið á víxli.
Um efnislega skýringu á þessum skilyrðum er fjallað í 43. gr. vxl. Tilkynninga-
skylda hvílir þó aðeins á víxilhafa í þeim tilvikum er fullnustukrafa víxilhafa
verður virk þar sem víxill hefur verið sýndur greiðanda árangurslaust til
samþykkis eða greiðslu.4 Þegar fullnustukrafa víxilhafa verður hins vegar virk án
sýningarskv. 2. eða3. tl. 2. mgr. 43. gr.,erekkium tilkynningaskyldu að ræða.5
Þó að víxilhafi veiti greiðanda greiðslufrest, ber honum samt skylda til þess að
senda tilkynningu til annarra víxilskuldara innan tilkynningafrests sem miðaður
er við hinn upphaflega umsamda gjalddaga.6
2 Hér eftir skammstafað vxl.
3 Sbr. orðalag 50. gr. vxl. ..... eða krefja má um fullnustu,".
4 Sem dæmi um tilvik, þar sem senda þarf tilkynningu, má benda á 5. mgr. 44. gr. vxl.
5 Stranz: Wechselgesetz, 254 og Ussing: Enkelte kontrakter, 127.
6 Stranz: Wechselgesetz, 254.
246