Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Blaðsíða 15

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Blaðsíða 15
fyrir landið. Stöðulögin staðfestu aðeins það sem þegar mátti skilja af sjálfri stjórnarskránni, enda varð henni ekki breytt með almennum lögum. Það mætti svo sem liggja milli hluta hvernig réttarstöðu yfirdómaranna var háttað á tímabilinu 1866 til 1871, ef ekki kæmi til að þá var einmitt einum af dómendum Landsyfirdómsins vikið úr embætti, með konungsúrskurði 19. ágúst 1870, án undanfarandi frávikningar um stundarsakir og án þess að málið væri áður borið undir dómstóla. Eftirmál urðu út af vikningunni sem einkum vörðuðu eftir- launarétt. Kom það mál bæði til kasta Ríkisþingsins og Alþingis. Ekki verður betur séð en að hvorugur aðili hafi litið svo á að stjórnarskrárverndar nyti við, en sú afstaða hefur enga þýðingu, hvorki um tímabilið frá 1849-1866 né um réttarstöðu dómara á íslandi frá 1874 og síðan. Hinsvegar kann hér í að felast vísbending um framkvæmdina á einveldistímanum.20 2.2 Retsreformen Fyrirheit stjórnarskrárinnar frá 1849 um réttarfarsumbætur lögðu þá skyldu á stjórn og þing að hefjast handa um þessar umbætur. Var það fljótlega gert, en árangurinn lét á sér standa. Framan af beindust aðgerðir stjórnarinnar og einstakra þingmanna einkum að sakamálaréttarfari, kviðdómum, opinberri og munnlegri málsmeðferð og breytingum á dómstólakerfinu í því sambandi. Með konunglegri tilskipun 22. febrúar 1868 var „Den store Proceskommission“ skipuð til að gera tillögur um heildstæðar endurbætur á réttarfarinu svo sem áður er nefnt. í 50. gr. frv. sem nefndin samdi er mælt svo fyrir að dómstólar kveði á um vikningu dómara um stundarsakir. Æ síðan var gert ráð fyrir hinu sama í þeim tillögum sem stjórnin lagði fyrir þingið. í frumvarpi til laga um skipan dómsvaldsins frá 1901 er þannig svohljóðandi ákvæði í 36. gr.: 20 Stöðulögin tóku gildi meðan málið var til meðferðar á Ríkisþinginu og var því vikið til Alþingis í samræmi við ákvæði þeirra. Nefnd, sem kjörin var í málið á Alþingi, lagði til að dómaranum, Benedikt Sveinssyni, yrðu fyrst um sinn ákveðin eftirlaun eftir þeim reglum sem þá giltu um frávikningu embættismanna um stundarsakir. Einn nefndarmanna, séra Þórarinn Böðvarsson, lét í ljós þá skoðun, að þar sem hin dönsku grundvallarlög hefðu ekki verið birt hér á landi, hefði konungur haft vald til að setja dómarann frá embætti í krafti einveldis. Benedikt átaldi stjórnina fyrir að veita sér ekki færi á að bera hönd fyrir höfuð sér og benti á að stjórnin hefði „borið það blákalt fram“ í meir en tvo áratugi áð stjórnarskráin frá 1849 gilti á íslandi. í nefndarálitinusegir að nefndin telji það eigi samkvæmt grundvallarreglum gildandi laga að víkja dómara úr embætti fyrir ósannaðar sakir, eða án dóms og laga. Framsögumaður nefndarinnar, Jón Sigurðsson á Gautlöndum, áréttaði þessa skoðun þannig að hann teldi dómstólana verða að fara með málið, áður en þingið gæti nokkuð sagt um eftirlaunin, enda væri það hvorki rétt eða aðgengilegt að það viðgengist í nokkru landi, þar sem einhver snefill væri af frjálsræði, að dómara á besta aldursskeiði væri vikið frá embætti án dóms og laga. Konungsfulltrúi, Hilmar Finsen stiftamtmaður, taldi nægar ástæður hafa verið fyrir frávikningunni og ekki á færi dómstóla að hagga ályktun konungs í því efni. Vart virðist hægt að líta á þennan skoðanamun sem réttarágreining. Sjá nánar Björn Þórðarson, s. 163-173 og þar tilvitnuð Alþingistíðindi og Ríkisdagstíðindi. 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.