Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Blaðsíða 6
Þorsteinn Gylfason er prófessor í heimspeki
við Háskóla Islands
Þorsteinn Gylfason:
FJÖLRÆÐI OG SJÁLFSTÆÐI
1. HVAÐ ER FJÖLRÆÐI?
Fjölræði kalla ég þá skipan í ríki eða þjóðfélagi að
meira eða minna sjálfstæðar stofnanir, hver eftir sínum eigin reglum eða hefð-
um.1 A útlendum málum mundi ég kalla fjölræði „plúralisma“. En þá er þess að
gæta að „plúralismi“ er mjög margrætt orð. Það þarf ekki að merkja annað en
sundurleitni samfélags, til dæmis þá að þegnarnir séu af ólíkum kynþáttum eða
játi margvíslega trú. Það getur líka merkt það sundurlyndi samfélags að þegn-
arnir komi sér ekki saman í stjórnmálum eða siðferðisefnum, þannig að þar sé
rammur ágreiningur um fóstureyðingar, stjóm fiskveiða eða frelsi til vín-
drykkju. Sundurlyndi er merkilegt umhugsunarefni í stjórnspeki á okkar dög-
um. Það er næsta almennt í vestrænum þjóðfélögum og virðist hafa farið vax-
andi á tuttugustu öld. Og það skapar þann vanda hvemig sé hægt að sameina
sundurlynt þjóðfélag í einu skipulegu ríki.2 Stundum stafar sundurlyndi af
sundurleitni, en Islendingar hafa löngum verið sundurlyndir þótt þeir séu eitt
samleitasta þjóðfélag á byggðu bóli.
1 Ritgerðin er reist á fyrirlestri sem fluttur var á Dómaraþingi 1994. Þingið var haldið á Hótel
Selfossi dagana 4ða-5ta nóvember 1994. Lestrinum var ætlað að vera ofurlítið framlag til
umræðna meðal dómara um sjálfstæði íslenzkra dómstóla, enda var ég beðinn að fjalla um
það efni. Eg þakka Hjördísi Hákonardóttur héraðsdómara fyrir að ræða efnið við mig og út-
vega mér heimildir um það þegar lesturinn var í smíðum, og Dómarafélagi íslands fyrir
gestrisni á Selfossi. Ég hafði mikið gagn af ritgerð Valtýs Sigurðssonar héraðsdómara „Sjálf-
stæði og staða dómara í nútíð og framtíð" í Tímariti lögfrœðinga lsta hefti 39da árgangs, apríl
1989, 44-56.
2 John Rawls: „The Idea of an Overlapping Consensus", Chapel Hill Symposium 1986 (fjöl-
rit).
192