Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Blaðsíða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Blaðsíða 20
bótaskylda verði lögð á er ekki í sjálfu sér undantekning, þó vissulega þurfí til þess sérstaka lagaheimild, í settum lögum eða öðrum réttarheimildum. Ekki skal hér fjölyrt um ástæður þess að ábyrgð er takmörkuð í svo ríkum mæli við siglingar og aðra flutningastarfsemi. Einnig verður látið liggja milli hluta hvort þessar reglur eru skynsamlegar eða réttlátar. Sem rök fyrir reglunum hafa menn lengi bent á það hve mikil áhætta fylgir siglingum, sagt að ótak- mörkuð ábyrgð gæti reynst útgerðaraðilum ofviða. Brækhus benti árið 19475 6 á að þau rök væru fyrir takmörkun ábyrgðar, að hún legði gmnn að einfaldri lausn undan áhættunni af bótaábyrgð með því að henni væru settar afmarkaðar skorður og jafnframt yrðu vátryggingar þar með einfaldari og hagkvæmari. Þessar röksemdir eru hafðar í hávegum nú um stundir.7 En frá undantekningarreglum em gerðar undantekningar. Stundum missa menn rétt til að takmarka ábyrgð sína. Um það eru nú ákvæði í siglingalögum sem fjallað var um í þeim hæstaréttardómum, sem eru tilefni greinarstúfs þessa, H 1992 1178 og 1993 1960.8 2. YFIRLIT UM ALLSHERJARTAKMÖRKUN í 173. gr. siglingalaga segir að útgerðarmaður geti takmarkað ábyrgð sína eftir reglum þeim sem kaflinn hefur að geyma.9 Heimildin er ekki bundin við útgerðarmann, aðrir geta einnig beitt takmörkun, t.d. skipverjar eða farmflytj- endur, sem ekki eru útgerðarmenn, sbr. 2. mgr. 173. gr. í 174. gr. eru taldar upp 5 Til viðbótar verður að nefna takmörkun bótakröfu farþega skv. 141. gr. laganna. 6 Erindið "Det begrensede rederansvar", prentað í ritröðinni Norskforsikríngsjuridisk Foren- ings Publikasjoner nr. 22, birtist síðar í safnritinu Juridiske Arbeider fra Sjd og Land, Osló 1968. 7 Sjá Innfdring i Sjdrett, bls. 121.1 raun eru það fyrst og fremst söguleg rök sem skýra tilvist reglna um takmörkun ábyrgðar. Sögunni er lýst að nokkru í Innfdring i Sjdrett, bls. 120-121. Viðskiptalífið hefur búið við takmörkun þessa lengur en elstu menn muna og allt er við það miðað að ábyrgð sé takmörkuð. Ekki er að vænta að á þessari eða næstu öld verði grundvallar- breytingar á þessu. Reglumar em ekki sniðnar fyrir íslenskar aðstæður. I íslenska flotanum, bæði fiski- og flutningaskipa, em tiltölulega lítil skip sem hafa lága takmörkunarfjárhæð. Þá er líklega algengara hér en annars staðar að farmeigendur og aðrir spari sér útgjöld til vátrygg- inga. 8 Til fróðleiks má benda á að í Haag-reglunum eins og þær hljóðuðu fram til þess að Visby- viðaukinn bættist við voru ekki nein ákvæði um missi réttar til að takmarka ábyrgð. Slíkar reglur þróuðust þó í dómaframkvæmd víðast hvar, sjá umfjöllun hjá Selvig, bls. 107-137. 9 Reglur þessar em í samræmi við Lundúna-sáttmálann frá 1976, sem heita má að hafi alfarið leyst af hólmi Brússel-sáttmálann frá 1957 meðal siglingaþjóða. Reglur Brússel-sáttmálans vom lögfestar hér á landi í siglingalög nr. 66/1963 með lögum nr. 14/1968. Um þær reglur fjallar Þórður Eyjólfsson í grein sinni í Tímariti lögfrœðinga 1969. 206
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.