Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Blaðsíða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Blaðsíða 21
kröfur sem falla undir takmörkunina, en í 175. gr. eru taldar kröfur undanþegnar takmörkun. Ekki er ástæða til að fjölyrða um þessar reglur hér. Það má þó orða sem niðurstöðu um reglurnar að ábyrgð er takmörkuð á nokkurn veginn öllum þeim bótakröfum sem beinst geta að útgerðarmanni, þó undantekningamar séu mikilvægar.10 Ef miðað er við fjárhæðir og áhættu þá nær takmörkun til megin- hluta krafnanna.* 11 I 177. gr. er lýsing á því hvemig takmörkunin kemur fram: í 1.-3. mgr. em sett fjárhæðamörkin, í fyrsta lagi vegna tjóns farþega á farþegaskipum, í öðm lagi vegna líkamstjóns annarra og í þriðja lagi vegna allra annarra krafna, þ.á m. krafna vegna líkamstjóns, sem ekki fást greiddar skv. 2. mgr. í 4. mgr. segir síðan að ábyrgðarmörkin í 1.-3. mgr. gildi fyrir samtölu allra krafna sem rísa vegna eins og sama atburðar gagnvart útgerðarmanni og öðrum þeim sem kunna að bera ábyrgð. Ef fjárhæðin dugar ekki til að ljúka greiðslu allra krafna, greiðast þær hlutfallslega. A svipaðan hátt og við gjaldþrotaskipti verða kröfuhafar að skipta tiltekinni fjárhæð á milli sín.12 Þetta getur skipt þá sem hafa orðið fyrir tjóni vemlegu máli, kannski fæst krafan ekki greidd nema að hálfu, jafnvel ekki nema lítið brot af henni. Um fjárhæðir er þetta að segja: Þær em lágar, einkum þegar lítil skip eiga í hlut. Takmörkunarfjárhæð vegna annars tjóns en líkamstjóns vegna 500 rúm- lesta skips nemur rúmlega 16 milljónum króna (167.000 SDR), fjárhæð vegna líkamstjóns er rúmlega 33 milljónir (333.000 SDR). Vegna skips sem er 7.500 rúmlestir eru þessar fjárhæðir annars vegar kr. 132.785.040 (1.336.000 SDR), hins vegar kr. 306.220.590 (3.081.000) SDR).13 10 Fyrir íslenska flotann skipta líkiega mestu undantekningamar um björgunarlaun og bóta- kröfur skipverja í 1. og 5. tl. 175. gr. 11 Kröfur vegna olíumengunar sem eru undanþegnar takmörkun þessa kafla í 2. tl. 175. gr., sæta takmörkun skv. reglum alþjóðasamnings frá 1969 sem lögfestur hefur verið á íslandi, sbr. lög nr. 14/1979. Sjá um reglur sáttmálans Innf0ring i Sj0rett, bls. 134. 12 Að stofni til standa allir kröfuhafar jafnfætis við skiptingu takmörkunarfjárhæðar. Eins og að framan greinir em kröfur farþega á farþegaskipum teknar f einum flokki og afmörkuð fjárhæð er sett til greiðslu þeirra krafna. Ef afgangur verður af þeirri fjárhæð fellur hún niður og ef hún dugar ekki fá farþegar ekki hlutdeild í fjárhæð skv. 3. mgr., eins og aðrir er orðið hafa fyrir lfkamstjóni. Þá em kröfur vegna líkamstjóns f einum flokki, sbr. 2. mgr.. Eru þetta allar slíkar kröfur, nema ekki kröfur farþega og ekki kröfur áhafnarmeðlima eða annarra starfsmanna útgerðarmanns, sbr. 5. tl. 175. gr. Allar aðrar kröfur greiðast af fjárhæð skv. 3. mgr., þ.á m. ógreiddur hluti krafna vegna líkamstjóns skv. 2. mgr. í hverjum flokki fyrir sig greiðast allar kröfur hlutfallslega jafnt. 13 Hér er miðað við gengi SDR 4. maí 1995, kr. 99,39. 207
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.