Tímarit lögfræðinga - 01.09.1995, Side 27
Jón Steinar Gunnlaugsson
er hœstaréttarlögmaður
Jón Steinar Gunnlaugsson:
UM SÖNNUNARBYRÐI í MÁLUM ER VARÐA
SKAÐABÓTAÁBYRGÐ LÆKNA OG
SJÚKRASTOFNANA
í 4. hefti Tímarits lögfræðinga 1994 eru birt nokkur erindi frá málþingi 5.
nóvember 1994 um bótaábyrgð heilbrigðisstétta og sjúkrastofnana. Undirrit-
aður flutti erindi á málþingi þessu en kom því ekki við að færa það í birtingar-
hæfan búning, þegar ritstjóri tímaritsins fór þess á leit. Verður nú gerð yfirbót,
en þó aðeins að því marki að auka lítillega við hugleiðingar í ofangreindum
erindum varðandi eitt afmarkað, en afar þýðingarmikið atriði, þ.e.a.s. sönnunar-
byrði í málum þar sem reynir á umrædda bótaábyrgð.
í grein í Juristen nr. 1/1990, bls. 1-15 fjallar danski lögfræðingurinn Oliver
Talevski um sönnunarbyrði í málum er varða skaðabótaábyrgð lækna. Þar tekur
hann sér fyrir hendur að kanna danska dómaframkvæmd í því skyni að rann-
saka, hvort danskir dómstólar hafi á þessu sviði vikið frá meginreglum í skaða-
bótarétti um sönnunarskyldu þess sem bóta krefst, bæði að því er varðar sönnun
um gáleysi og afleiðingar þess. Meginniðurstöðu Talevskis um þessi efni sýnist
mega orða svo (sjá bls. 11-12 í ritgerðinni):
Þess er krafist, að sjúklingurinn sanni eftir venjulegum mælikvarða, að um sé að ræða
gáleysislega athöfn eða athafnaleysi við eitt eða fleiri læknisverk, að þessi athöfn eða
athafnaleysi sé til þess fallin að auka hættuna á tilteknum alvarlegum skaða og að
slíkur skaði verði í raun og vem. Séu þessar sönnunarkröfur uppfylltar ber stefndi
(læknir eða sjúkrastofnun) sönnunarbyrðina um að skaðinn verði ekki rakinn til gá-
213